Eyjan

Sveinn Andri Sveinsson: Ólafur Ragnar hefur aldrei verið spámannlega vaxinn

Mynd

Nei-hópurinn hefur verið háværari en já-hópurinn en fyrir því er góð ástæða. Skilaboð já-hópsins eru einföld og mjög skýr og snýst um að þjóðin veiti umboð til að setjast við samningaborðið. Nei-hópurinn þarf að verja miklum kröftum í hvers kyns hræðsluáróður og skilaboðin eru alls ekki skýr, enda enginn fótur fyrir þeim. Allt í einu er Ólafur Ragnar Grímsson orðinn andlegur leiðtogi Sjálfstæðismanna. Sveinn Andri Sveinsson, hæstaréttarlögmaður, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hér er hægt að hlusta á brot úr þættinum:

Eyjan - Sveinn Andri - 5

Það hefur verið bent á það og það er alveg rétt að Austur-Evrópuríki, fyrrverandi austantjaldsríki sem hafa gengið í ESB, þau hafa þurft að fara í aðlögun á samningstímanum vegna þess að þau bjuggu ekki við rótgrónar lýðræðisstofnanir eða réttarkerfi og það þurfti að fara í mikla aðlögun þar. Við erum í allt annarri stöðu og við erum búin að fara í gegnum þessa aðlögun út af EES. Við erum á hverjum einasta degi, eins og þú bendir á, að aðlaga okkur ESB í gegnum EES.

„Eina aðlögunin sem við þurfum að fara í, ef við ætlum að taka upp evruna, við þurfum að koma skikki á efnahagskerfi landsins. Það er oft talað um það að glöggt er gests auga á þetta allt saman og reglulega koma þeir í heimsókn til okkar frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og ráðleggja okkur um hitt og þetta, enda erum við með einhver lán frá þeim og svo framvegis. Góðar breytingar sem hafa komið inn einmitt í gegnum samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Það eru breytingar sem komu út af Evrópusambandinu og út af samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sem eru miklar efasemdir um að hefðu verið innleiddar hefðum við staðið þar fyrir utan.

Með sama hætti er auðvitað jákvætt að við fáum aðhald og stuðning og fyrirgreiðslu og bara hreinlega aðstoð við það að ná þessum markmiðum okkar í ríkisfjármálum þannig að við getum tekið upp evruna.“

Það er nefnilega eitt, við fáum þegar við förum, segjum að við göngum inn og það er sett áætlun í gang um að taka upp evru. Það þýðir að við þurfum að koma ákveðnu skikki á okkar mál en við fáum til þess stuðning frá Evrópska seðlabankanum og við sáum það til dæmis, það hafði gríðarlega mikil áhrif hér. Það var beinn og óbeinn stuðningur sem við fengum frá Evrópu þegar við vorum í aðildarviðræðunum í kjölfar hrunsins.

„Nákvæmlega, þannig að ég bara trúi ekki öðru en að almenningur í landinu sjái í gegnum þennan hræðsluáróður. Ég bara vona það, en það reynir á það.“

Það reynir á það og þá náttúrlega gildir líka að lenda ekki í því sem Bretar lentu í Brexit-kosningunni þegar unga fólkið, framtíðin, hún sat heima og lét fortíðina velja fyrir sig framtíð.

„Já, það er annars vegar það. Og svo náðist einhvern veginn að plata kjósendurna. Plata þá með t.d.: Ef við förum út að þá munum við eiga skrilljarða til þess að setja inn í heilbrigðiskerfið. Það kom ekki króna inn í heilbrigðiskerfið út af Brexit. Þannig að þetta var einhver mesta hörmung sem hefur dunið yfir land af mannavöldum í langan tíma.“

Já, og Bretland hefur orðið fyrir alvarlegu efnahagstjóni út af útgöngunni. Og það heldur áfram, þetta er ekkert einskiptis, þetta er að gerast á hverju einasta ári. 

En maður hefur tekið eftir því að nei-grúppan hérna, hún hefur verið háværari.

„Já, hún hefur verið háværari.“

Hún hefur verið talsvert háværari. Heldurðu að já-menn séu of værukærir?

„Nei, ég held að stór hluti þeirra sem eru já, bæði hreinir já og síðan sem eru sjá, sem er líka mjög stór hópur, sé bara fólk sem nennir ekki að hlusta á þetta og er bara þessi þögli meirihluti. Ég ætla að vonast til þess. Þetta er svo einföld skilaboð frá þeim sem eru já. Það bara: Heyrðu, við viljum bara fá grænt ljós á það að hefja viðræður við Evrópusambandið.

Nei-sinnar eru að kafna úr hræðsluáróðri. Þeir geta ekki talað fyrir hræðsluáróðri. og það er bara tímafrekara og það þarf að dæla honum miklu meira út, hræðsluáróðrinum, heldur en þessum einföldu jákvæðu skilaboðum: Heyrðu, sjáum bara hvað samningurinn hefur. En hinir bara: Það mun aldrei nást neinn samningur og ef við förum inn þá verði þetta endalok Íslands og guð má vita hvað.“

Þetta eru sömu spádómarnir og voru hér þegar EES var í undirbúningi.

„Já og það er alveg magnað að fylgjast með því hvernig Sjálfstæðisflokkurinn hefur allt í einu fundið sinn Messías. Stóri sannleikurinn, það er Ólafur Ragnar Grímsson, maður sem sko mótmælti áformum, ásamt Steingrími J., mótmælti áformum um byggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Allt of stór, það er aldrei þörf á svona stórri flugstöð. Svo var hann á móti bjórnum: Þetta er til stórkostlegrar ógæfu fyrir land og lýð að leyfa bjórinn. Þetta náttúrlega bara leiddi til þess að fólk fór að hætta að drekka sterkt, hvarf frá brennivíninu og fór að drekka meinlausari drykki.“

Stórbætti áfengismenninguna hérna.

„Og svo náttúrlega var hann algjörlega á móti samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Þannig að hann hefur aldrei verið sérstaklega spámannlega vaxinn hann Ólafur.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

 

 

Einnig er hægt að hlusta á Spotify