Eyjan

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir: Ólafur Ragnar reynir að mála skrattann á vegginn nú sem fyrr

Mynd
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Mynd: DV

Ef nei verður niðurstaðan í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardaginn mun íslenskur almenningur hafa samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu að þeir hinir sömu og hafa haft hér tögl og hagldir í áratugi og aldir skuli áfram ráða hér öllu. Það yrði vond niðurstaða. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hér er hægt að hlusta á brot úr þættinum:

Eyjan - Ingibjörg Sólrún Gísladóttir - 5

Það sem að mér finnst athyglisvert á margan hátt er einmitt þetta sem þú komst inn á, það er þetta að segja heyrðu, nei, bara segjum nei. Af hverju viljum við segja nei? Er það af því að hér sé allt svo frábært? Við erum ein ríkasta þjóð í heimi, það er alveg rétt. Við hins vegar, og það er kannski ekkert séríslenskt dæmi, það er líka mjög amerískt dæmi. Það eru mikil misskipting.

„Og hún er vaxandi.“

Hún er vaxandi og mér finnst ég sjá það að sko þeir sem eru svona prímusmótorar í því að berjast gegn því að við fáum að sjá samninginn, það eru aðilar sem hafa hagsmuni af því, það eru aðilar sem að munu tapa í raun og veru á því að við förum í ESB, tökum upp evru og sköpum hér aðstæður fyrir íslenskan almenning sem eru sambærilegar við það sem almenningur í öðrum Evrópulöndum býr við. Það eru aðilar sem að njóta góðs af því. Maðurinn sem á milljarð inni á banka, hann fær 80 milljónir í vexti hér á Íslandi. Í Evrulandi þá fær hann 20 milljónir. Þetta eru hagsmunir.

„Já, þetta eru miklir hagsmunir. Það er hópur manna í þessu samfélagi, og hann getur verið nokkuð stór, sem er með allt sitt á þurru, skilurðu, og telur ekki að það sé neitt eftir neinu að slægjast fyrir sig og sína í Evrópusambandinu og sér kannski meira fram á að þeir lendi undir einhverjum aga og einhverju eftirliti sem þeir ekki kæra sig um. Og þess vegna sé ekki rétt að vera eitthvað að kíkja í þennan pakka, heldur bara best að láta hann algjörlega eiga sig og vilja heldur ekkert að íslenskur almenningur sé eitthvað að spá í þennan pakka.

Og það er það sem mér finnst eiginlega verst, ef niðurstaðan verður nei í ágúst, þetta er svona einhvern veginn verið að renna upp fyrir mér. Það er búið að vera ljóst fyrir mér mjög lengi að ég vil fara í þessar samningaviðræður.  Ég var í utanríkismálanefnd Alþingis og tók þátt í allri umræðunni um Evrópska efnahagssvæðið og ég hef sagt það áður, þegar ég kom að því máli þá var ég mjög skeptísk og sá svona eiginlega skrattann í hverju horni varðandi Evrópusambandið. Svo fór ég að vinna í málinu og skoða allt þetta samningaferli og alla möguleikana og þá bara snerist mér algjörlega hugur og ég sá að þarna var bara fráleitt hjá okkur að ætla að segja nei við samningnum um Evrópska efnahagssvæðið eins og Ólafur Ragnar Grímsson vildi gera á þeim tíma með því að mála skrattann á vegg eins og hann gerir líka núna. Hann kaus á móti samningnum.

En sem sagt þarna kom ég að málinu og þá gerði ég mér grein fyrir því og ég sagði það í nefndarálitinu mínu í Alþingi 1991 að ég liti svo á að þetta væri biðsalur, Evrópska efnahagssvæðið væri biðsalur að Evrópusambandinu, þannig þá þegar var ég búinn að móta þá afstöðu og hún hefur ekkert breyst. Þannig að og ég vil skoða þetta til enda. En það sem ég ætlaði að byrja á að segja var að það sem mér finnst verst ef að niðurstaðan verður nei núna í ágúst og fyndist erfiðast að sætta mig við varðandi það, ég get alveg skilið, þú veist það eru alls konar málefnaleg rök og það getur vel verið að niðurstaðan verði nei og það verði á ýmsum forsendum sem fólk tekur þá afstöðu. En mér fyndist verst að í því felst að þar með er íslenskur almenningur í þjóðaratkvæðagreiðslu búinn að samþykkja það að þau öfl sem hafa haft tögl og hagldir í þessu samfélagi um áratugaskeið og alda eigi að gera það áfram og ætlar ekki að gera neitt til þess að storka eða ögra þessum öflum og það finnst mér svo mikið þýlyndi sem ég á svo erfitt með að sætta mig við.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

 

 

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.