Ummæli Ólafs Ragnars Grímssonar í Brotkasti um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið, þar sem hann hæðist að Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra, með rökum sem enga skoðun þola, hafa verið harðlega gagnrýnd. DV hefur birt tímalínu sem dregur vissan dár að ummælum forsetans fyrrverandi.
Sigurður Gylfi Magnússon, sagnfræðiprófessor við HÍ; tók málið upp á Facebook og bætti við þáttum sem ekki voru nefndir í tímalínu DV en skipta vissulega máli.
„Framganga Ólafs Ragnars Grímssonar fyrrum forseta Íslands í umræðunni um væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu hinn 29. ágúst nk. er á margan hátt kostuleg. Hann slengir fram í viðtölum fullyrðingum þess sem veit og skilur – manns sem hefur sambönd og skilur þess vegna meira en við hin hvernig landið liggur. Hér má til dæmis vísa í frásögn hans af ónefndum sérfræðingum í París sem áttu að hafa hlegið óskaplega yfir því að íslenska ríkisstjórnin ætlaði að efna til tvöfaldrar atkvæðagreiðslu um aðild að ESB. Slíkt væri algjörlega óþekkt og væri bara dæmi um hvað þessar konur sem leiða ríkisstjórnina vissu lítið. En lygarnar voru auðvitað leiðréttar því þessi háttur að ganga til atkvæðagreiðslu um gerðan samning við ESB hafði verið sú leið sem farin hefur verið í öllum ríkjum Evrópusambandsins nema þremur. Það voru margir sem stukku fram og bentu á hið augljósa. En í millitíðinni lifði þessi yfirlýsing Ólafs Ragnars og varð tilefni fyrir andstæðinga ESB til að fárast yfir þeim leiðum sem blessaðir einfeldningarnir sem leiða ríkisstjórnina kusu að fara. Viðtalið sem ég er að vísa í birtist í þættinum Spjallið með Frosta Logasyni á efnisveitunni Brottkastið.
Ég lagði á mig að hlusta á þetta viðtal og það gekk í raun algjörlega fram að mér það sem maðurinn lagði á borð þjóðarinnar. Þar hló hann glaðhlakkalega af „heimsku“ Þorgerðar Katrínar og Kristrúnar Frostadóttur að vísa til þess að þessi atkvæðagreiðsla færi fram núna vegna ásælni Trump yfir Grænlandi. Hann taldi það ekki ganga upp vegna þess að Joe Biden hafði verið forseti þegar stjórnarsáttmálinn var gerður í lok desember 2025. Þetta væri því eftiráskýring. Jú, reyndar, þá átti Biden 20 daga eftir í embætti þegar stjórnarsáttmálinn var undirritaður, en þar með er ekki öll sagan sögð.“
Sigurður Gylfi vitnar í tímalínu DV en bendir á að mikilvægt sé að gleyma ekki Project 2025 og nýrri þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna, sem eru leiðarvísir á það sem er að gerast í Bandaríkjum Donalds Trump.
„1. Project 2025 (heitir líka „2025 Presidential Transition Project“) er plagg sem unnið hafði verið að í forsetatíð Bidens af stórum hópi fólks sem tilheyrði öfgahægriarmi Repúblikanaflokksins sem kenndur er við The Heritage Foundation og gefið út löngu áður en Trump vann kosningarnar eða í apríl 2023. Trump reyndi að sverja sig frá þessu 1000 blaðsíðna plaggi en allir vissu að þetta væri leiðarkortið (blueprint) fyrir næsta kjörtímabil hans ef hann kæmist til valda. Ég lagði það á mig að lesa þetta skjal á sínum tíma og varð ekki um sel, því þarna átti í raun að ganga í skrokk á innlendri stjórnsýslu og alþjóðakerfinu. Í lok síðasta árs eftir að Trump hafði setið í forsetastóli í rétt um eitt ár gaf rannsóknarblaðamaðurinn á tímaritinu Atlantic í USA, David A Graham, út bók sem nefndist einfaldlega The Project: How Project 2025 is Reshaping America þar sem hann gerir því skóna að Trump og hans fólki hafi náð að hrinda ca. 50% þeirra hugmynda í framkvæmd sem kynntar voru í Project 2025 á þessum stutta tíma. Þar er meðal annars gert grein fyrir hvernig Trump hafi markvisst reynt á þanþol bandarískrar stjórnsýslu og valdsviðs forsetans með aðgerðum sem eiga sér engar hliðstæður í sögu þessa volduga ríkis. Hugmyndafræðin er skýr og sver sig í ætt við Bandaríkin á sjötta áratug 20. aldar. Vert er að hafa í huga að allir sem hafa fylgst með bandarískum stjórnmálum á undanförnum árum vita að þessi umræða átti sér stað löngu áður en Trump tók við valdataumunum 20. janúar 2025.
2. Ný þjóðaröryggisstefna USA sem er vægast sagt mjög sjokkerandi plagg. Ég hef lesið sumt úr þessari stefnu en þó aðallega heyrt málsmetandi fólk í USA talað um hvers alvarlegt plagg þetta er. Þar er um algjöra stefnubreytingu að ræða í samskiptum USA við önnur lönd. Hún ber nafnið National Security Strategy sem Hvíta húsið kynnti í desember 2025 og markar stóra breytingu undir merkjum „American First“ á utanríkistefnu USA. Þar er alþjóðahyggju hafnað og víðtæk afskipti í þágu þröngra hagsmuna eru boðaðir, með áherslu á landamæraöryggi, efnahagslegt sjálfstæði og að bandamenn greiði kostnað við eigin varnir, svona í stuttu máli sagt. Ég held að það hefði verið mjög óábyrgt af ríkisstjórninni að bíða með þessa atkvæðagreiðslu í ljósi framvindunnar í Bandaríkjunum svo ekki sé nú minnst á ruglið í austri og yfirgang Rússa.
Þegar betur er skyggnst um bekki kemur í ljós að Ólafur Ragnar Grímsson hefur sofið á verðinum og á meðan hann hæðir „konurnar í ríkisstjórninni“ þá afhjúpar hann hinn ótrúverðuga málflutning manns sem leggur allt í sölurnar til að þjóðin fá ekki að segja sitt álit á Evrópusambandinu.
Gott fólk – látum ekki blekkjast og göngum til móts við þá áskorun að gera upp íslenskt samfélag á sama tíma og við ræðum við vini okkar í Evrópu um hagfelld samskipti okkar og þeirra í framtíðinni. Segjum JÁ hinn 29. ágúst!“