Það getur enginn fullyrt að um ekkert sé að semja við ESB og enginn getur heldur fullyrt að við Íslendingar fáum allar kröfur okkar samþykktar. Það þarf að semja og þess vegna þurfum við að setjast að samningaborðinu og klára aðildarsamning við ESB. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Hér er hægt að hlusta á brot úr þættinum:
Við höfum séð það eftir að núverandi Bandaríkjaforseti tók við völdum í seinna skipti. Grænland, hann virðist hafa bara ætlað að leggja undir sig Grænland og ætla að gera það bara með því að steyta hnefann.
„Hann er enn við sama heygarðshornið.“
Hann er ekkert hættur við það en hann væri sennilega búinn að því ef ekki væri fyrir þá staðreynd að Evrópusambandið hefur staðið hundrað prósent saman með Danmörku og Grænlandi.
„Já, já, nákvæmlega og þá kom náttúrlega skýrt í ljós þar að þessi samstaða, hverju hún skilaði og maður getur rétt ímyndað sér hvernig það hefði verið fyrir Danmörku að standa eina sem sagt gegn Bandaríkjunum, það hefði ekki verið einfalt.“
Nei, og þetta náttúrlega dregur upp hvað heimsmyndin hefur kollvarpast á örstuttum tíma.
„Já, hún hefur gert það og auðvitað er það þannig að við búum í heimi sem er síbreytilegur, það eru alltaf einhverjar nýjar ógnir og það er ný staða að koma upp og við verðum alltaf að meta stöðuna upp á nýtt og meta sem sagt styrk okkar og tækifæri og ég held að þau liggi þarna núna og þetta sé bara tækifæri sem við þurfum að taka og vinna úr.“
Ég er sammála þér og EES var aldrei hugsað nema sem svona bara biðsalur, bráðabirgðalausn. Nú erum við að taka ákvörðun um það hvort við viljum fara úr þessum biðsal og fara inn á ballið, ef svo mætti segja. Ef við ákveðum að gera það ekki og svo eins og reyndar virðist vera vaxandi fylgi við í Noregi og það er þrýstingur frá atvinnulífinu til dæmis að Noregur stígi skrefið og fari inn. Það er ekkert EES fyrir Ísland. ef Noregur fer inn í ESB.
„Noregur er kjölfesta í EES, hvað okkar hlið varðar, algjörlega. Þannig að það er búið ef Noregur fer inn þá er EES búið og ókei, það getur vel verið að það sé hægt að gera einhvern tvíhliða samning. En þá ertu með svona of mikla og sterka stoð á annan veginn og svo bara eiginlega ekki neitt á hinn veginn. Þannig að það finnst mér nú ekki voðalega fýsilegur kostur. Svo er hitt aftur hvað varðar svona samning við Evrópusambandið um aðild. Þar sem að þreytir mig líka í umræðunni, það er eins og það sé svo mikið af sérfræðingum hérna úti, pólitískum sérfræðingum sem vita nákvæmlega hvað verður í þeim samning og hvað við getum fengið út úr þeim samning. Þeir þurfa ekkert að setjast við samningaborð því þeir vita það hvað er í samningnum. Þetta finnst mér svo sérkennilegt. Mér finnst alveg fráleitt að ég geti svo komið hinum megin frá og sagt nei, við munum fá allt sem við viljum út úr samningum. Við getum ekkert vitað.“
Það getur enginn fullyrt neitt svona.
„Það getur enginn fullyrt í fyrsta lagi að við getum fengið allt út úr samningi sem við viljum né heldur hitt að samningurinn verði bara ómögulegur. Það er bara ekki nokkur einasta leið að fullyrða á hvorn veginn sem er. Við þurfum að setjast að samningaborðinu og við þurfum að halda fast á okkar hagsmunum og sjá hvað við getum fengið út úr þessu og svo tökum við ákvörðun þegar þar að kemur.“
Nákvæmlega, þetta nefnilega snýst um það, þessi hreyfing, Já til að SJÁ, þetta slagorð, það er, það er dýpt í því.
„Já, já, það er það. En um leið verðum við auðvitað að viðurkenna það að við erum ekki bara að sjá, við erum að taka stefnu í þessa átt.“
Við erum að taka stefnuna, klárlega. Við viljum fara í þessa átt.
„Að því gefnu að við fáum góðan samning.“
Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:
Einnig er hægt að hlusta á Spotify.