Í Brennu-Njálssögu er sagt frá dramatískum skilnaði hjónanna Þráins Sigfússonar og Þórhildar skáldkonu. Rifrildi í brúðkaupsveislu að Hlíðarenda endaði með því að Þráinn rak Þórhildi úr veislunni og bað sér annarrar konu. Sagan segir að Þráinn hafi unnað henni lítið enda hafi hún talað mikið og haft uppi gamanmál sem Þráni mislíkaði. Einhver aðdragandi hefur því verið að þessum skyndilega skilnaði.
Þrátt fyrir fögur fyrirheit og ástarjátningar brúðkaupsdagsins súrnar stundum í samböndum. Fólk áttar sig á því að kannski var ekki rétt valið og makinn ekki sá draumaprins/prinsessa sem lagt var upp með. Fólk fjarlægist smám saman og lendir á svokallaðri skilnaðarbraut sem einkennist af áhugaleysi, ósætti og misskilningi. Rifist er út af börnum, tengdafólki, peningum og verkaskiptingu á heimili. Þriðja heimsstyrjöldin hangir stundum í loftinu eins og sverð Damóklesar.
Áhugi fyrir hvort öðru minnkar . Umræðuefnum fækkar enda er tilveran full af jarðsprengjusvæðum sem ekki má minnast á. Látbragð og svipbrigði bera þessu áhugaleysi og þreytu vitni.
Fjarlægðin leiðir til þess að kossar, snerting og faðmlög eru sjaldgæf eins og hver annar geirfugl á eyðiskeri. Nánd og innileiki hverfa. Kynlífið verður æ dauflegra og líkist helst þreyttum húðarklár. Hvort um sig kennir hinu um kynlífsleysið. Hann: „Þú ert kyndauf eins og freðýsa.“ Hún: „Þú er jafn ósexí og Hofsós í rigningu.“
Hjón á leið í skilnað einbeita sér að því sem hinn aðilinn þarf að gera eða breyta. Þau hrósa sjaldnast hvort öðru heldur endurtaka sömu ávirðingarnar.
Þessi þróun getur tekið mislangan tíma. Fólk getur verið í marga mánuði eða ár að skilja eða skilja ekki. Rúmlega 40 % af hjónaböndum á Íslandi enda með lögskilnaði.
Ég hitti Þráinn Sigfússon á dögunum í Kostkó. Hann staðfesti að þau Þórhildur hefðu verið lengi í skilnaðarferli. „Svo fékk ég allt í einu nóg og sleit sambandinu. Sé ekki eftir því enda er ég kominn í nýtt samband með mun yngri konu. Reyndar erum við hætt að sofa saman og tölum lítið…“ Þegar hér var komið sögu sagði ég: „Þráinn mér heyrist þú kominn aftur á skilnaðarbraut. Við verðum að ræða saman og finna einhver úrræði til að stöðva þessa þróun.“ „Ég hef samband,“ sagði hann áhugalaust og við kvöddumst. Hef ekki heyrt frá honum síðan! Meginreglan er þó sú að jafnvel færustu hjónabandsráðgjöfum reynist erfitt að blása lífi í samband þar sem hvorugur aðilinn vill breyta neinu.