Íslendingar standa frammi fyrir stórum ákvörðunum þessa dagana. Fram undan er þjóðaratkvæðagreiðsla um það hvort ríkisstjórnin eigi að hefja á ný aðildarviðræður við ESB – vel að merkja, atkvæðagreiðslan er um það hvort hefja eigi viðræður á ný, ekki um aðildina sjálfa. Um aðild verður kosið þegar fullbúinn samningur liggur fyrir.
Skoðanir eru skiptar. Hagsmunasamtök hafa barist gegn nánara sambandi við Evrópu og sumir telja að málið snúist um það hvort Ísland eigi heima í Evrópu eða Ameríku.
Nýlega bárust kaldar kveðjur frá Guðmundi Fertram Sigurjónssyni, framkvæmdastjóra hjá danska stórfyrirtækinu Coloplast og fyrrverandi forstjóra Kerecis, sem Coloplast keypti árið 2023. Guðmundur Fertram hefur skipað sér í fremstu röð þeirra sem berjast gegn aðild Íslands að ESB – og rök hans eru þess virði að skoða, ekki síst hvert hann telur að Ísland eigi að stefna í staðinn.
Rökin eru þau að Evrópa sé hnignandi heimsálfa þar sem nýsköpun geti ekki dafnað og að Coloplast þurfi því að kaupa vöxt sinn utan álfunnar. Kaldhæðnin er hins vegar sú að Coloplast hefur sjálft fengið milljónir evra í styrki úr sjóðum ESB, auk danskra ríkisstyrkja til nýsköpunar. Árið 2019 fékk Kerecis meira að segja 407 milljóna króna styrk úr „Fast Track to Innovation“ sjóði ESB, sem hjálpaði til við að tryggja velgengni fyrirtækisins. Orðið á götunni er að þeir sem hafa mjólkað sjóði ESB mest séu lítt sannfærandi þegar þeir halda því fram að þar sé ekkert að sækja.
Orðið á götunni er að þau skilaboð að Ísland eigi frekar að semja um fríverslunarsamning við Trump veki upp alvarlegar spurningar um það hvert þeir sem tala fyrir slíku vilja taka Ísland. Bandaríkin stefna í allt aðra átt en ESB. Í stað fríverslunar eru ítrekað settir á háir tollar, jafnvel á vinaþjóðir, og jafnvel hótanir um að beita afli til að yfirtaka heil lönd. Þarf að nefna Grænland?
Orðið á götunni er að spyrja mætti æðstu stjórnendur Coloplast: Sé Evrópa er jafn ómöguleg og Guðmundur Fertram heldur fram, hvernig stendur þá á því að meira en 90% Dana segjast ánægðir með aðild Danmerkur að ESB? Talar Guðmundur Fertram fyrir hönd Coloplast þegar hann lýsir frati á ESB?