Eyjan

Sveinn Andri Sveinsson: Örvænting hjá nei-liðinu – hagsmunaaðilar sem veðja með verðbólgu gegn almenningi

Mynd

Áfram Ísland hreyfingin byggist á fyrirtækjum og stjórnendum sem veðja með verðbólgunni og gegn íslenskum almenningi. Fasteignafélagið Heimar, sem Halldór Benjamín Þorbergsson, einn helsti forsvarsmaður Áfram Ísland, hagnast um 900 milljónir króna fyrir hvert prósentustig sem verðbólgan hækkar. Sveinn Andri Sveinsson, hæstaréttarlögmaður, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hér er hægt að hlusta á brot úr þættinum:

Eyjan - Sveinn Andri - 2

Ég hef nú stundum velt fyrir mér, af hverju eru menn að berjast gegn því að við fáum samning á borðið?

„Ég skal segja þér af hverju það er. Það er vegna þess að fólk óttast það mest, ráðandi öfl í samfélaginu, að samninganefndinni, sem vonandi verður teflt fram, að samninganefndinni takist að gera hagstæðan samning við Evrópusambandið. Og vegna þess að þetta er hjá þessu fólki, þá ráða að megninu til. Þetta er andstaða við Evrópusambandið er margs kyns. Við höfum bara svona venjulega hefðbundna kommúnista, fólk af vinstri hlið sem bara lítur á Evrópusambandið sem auðmagn og kapítalista og svo framvegis. En síðan höfum við hin fjármagnslegu hagsmunaöfl sem horfa á stundargróðann í ársreikningunum hjá sér.“

Það eru miklir hagsmunir þar.

„Miklir hagsmunir. Bara ég sá þetta samantekið núna á vef, verdtryggingin.is. Skemmtilegur vefur. Það sýnir það að af þessum stærstu fyrirtækjum, fjármálafyrirtækjum landsins, að þá er þetta, miðað við núverandi verðbólgustig og vaxtastig, þá eru þessi fyrirtæki að hagnast um 50 milljarða á þessu ári, bara miðað við núverandi verðbólgustig og vaxtastig. Og bara sem dæmi, ef verðbólgan fer úr 5% í 10%, þá er það innbyggt í ársreikninga, í ársuppgjörið og reksturinn hjá Heimum, sem formaður Áfram Ísland veitir forstöðu, þá græðir það fyrirtæki fjórum og hálfum milljarði meira ef verðbólgan fer úr fimm í tíu. Og bankarnir, viðskiptabankarnir, við hvert 1% verðbólguaukningarstig, sem nemur einu prósentustigi, þá hagnast allir viðskiptabankarnir um tvo til þrjá milljarða hver.

Þannig að þessar stofnanir sem núna koma saman undir Áfram Ísland, þetta eru fyrirtæki og stjórnendur sem eru að veðja með verðbólgunni en gegn almenningi á Íslandi. Ég hef það á tilfinningunni, Ólafur, að fólk sjái í gegnum þetta. Fólk sjái í gegnum þetta þegar þau koma saman, Sólveig Anna og Halldór Benjamín, sem dreymir um að verða formaður Sjálfstæðisflokksins. Þegar þau koma saman og ná að sameinast um þetta, þá held ég að þetta verði svipað upp á teningnum þegar Sjálfstæðismenn og Vinstri grænir náðu saman í fyrsta lagi um verstu ríkisstjórn í sögu lýðveldisins og náðu síðan saman um það að segja þjóðinni að það ætti að kjósa Katrínu Jakobsdóttur sem forseta. Svipað og þau sögðu að það ætti að kjósa Davíð Oddsson sem forseta þar áður. Ég held að þessi uppreisn grasrótarinnar sé í gangi í þessum kosningum, að fólk láti ekki segja sér fyrir verkum. Fólk er ekki fífl, fólk veit það að það er ekki verið að kjósa um aðild 29. ágúst þó að þetta sé presenterað af neikvæða fólkinu.

Það er bara verið að kjósa um það hvort aðildarviðræður megi fara fram. Og vel að merkja, þá má einmitt benda á það, það sem er sláandi, að formaður Sjálfstæðisflokksins fékk það í gegn í utanríkismálanefnd að Feneyjanefnd Evrópuráðsins gæfi umsögn um orðalag á spurningunni, hvernig ætti að orða spurninguna fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta var bara samþykkt og Feneyjanefndin kemur með sína tillögu og athugasemdir og það var farið að þeirra ábendingum. Síðan sagði Feneyjanefndin jafnframt að það væri mikilvægt að það væri ekki presenterað að það væri verið að kjósa um aðild af því það væri alls ekki tilfellið, en sami flokkur, Sjálfstæðisflokkurinn, með sitt nýja batterí Áfram Ísland, engu að síður auglýsir það grimmt í heilsíðuauglýsingum fyrir sína fundarherferð að það sé verið að kjósa um aðild. Þannig að þetta er, þetta er, ég held að þetta sé merki um örvæntingu.

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

 

 

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.