Fátt er erfiðara fullorðnum karlmönnum en að vera fyrrum stjarna í fótbolta. Þegar ferlinum lýkur eru oft góð ráð dýr. Farsæll fótboltaferill er ekki ávísun á trygga og vellaunaða vinnu í samkeppnissamfélagi nútímans. Margir vanræktu skólanám og standa uppi vegalausir á erfiðum vinnumarkaði. Flestir reyna að vinna áfram í fótboltanum og leita eftir þjálfara- eða ráðgjafastöðu hjá íþróttafélögum. Sumir komast að hjá fjölmiðlum sem íþróttafréttamenn eða álitsgjafar. Allir reyna að lengja ferilinn í fótboltanum eins og þeim er unnt. Það er óþolandi að standa utan flóðljósanna og vera ekki hluti af leiknum lengur.
HM í fótbolta tröllríður heimsbyggðinni þessa dagana. Ég hef fylgst með HM allt frá árinu 1958 þegar Brassar unnu Svía í úrslitunum. Les og fylgist með sænsku, þýsku og ensku pressunni og sit sem límdur við RÚV. Þessi tími er eins og markaðstorg og tívolí fyrir gamla fótboltamenn og besserwissera. Þeir reyna í örvæntingu að finna sér hlutverk hjá fjölmiðlunum. Menn bjóða sig fram í viðtöl eða taka viðtöl við sjálfa sig og spá fyrir um væntanleg úrslit eða liðsuppstillingu. Allir reyna að yfirtrompa hina með hrakspám um eigið lið og framhaldið. Menn gagnrýna þjálfarann hart fyrir liðsvalið enda voru mun betri leikmenn skildir eftir heima.
Smám saman áttar maður sig á því að þessir spekingar eiga þá ósk heitasta að eigin liði gangi sem verst. Öll bölsýnin var þá sanngjörn og miskunnarlaus gagnrýni á þjálfara og leikmenn átti rétt á sér. Þessir heimsendaspámenn og fyrrum stjörnuleikmenn fá mikið rými í fjölmiðlum.
Hetjan hefur þó ekki meira vit á fótbolta en hver annar heldur er í örvinglan að minna heiminn á eigin tilvist. „Hlustið á mig! Ekki gleyma mér! Ég er enn þá til!“ Í fjölmiðlaheimi nútímans þar sem skipta verður um fyrirsagnir oft á dag er auðvelt að gleymast og týnast. Frægðin er skammvinn og á morgun eru komnir nýir spámenn sem taka sviðið. Menn keppa því um fyrirsagnir með stórkarlalegum yfirlýsingum og heimsendaspám.
Ég hef lengi haldið því fram að engir séu aumkunarverðari en fyrrum þingmenn sem misst hafa vinnuna. HM í fótbolta hefur fært mér heim sanninn um að þetta er rangt. Enginn á eins bágt og fyrrum atvinnumaður í fótbolta sem er hræddur um að enginn muni eftir honum lengur.