Eyjan

Georg Bjarnfreðarson: „Þú getur látið þér líða illa í þínum eigin frítíma“

Mynd
Georg Bjarnfreðarson telst ekki til hátekjumanns, þó svo hann sé með sex háskólagráður. Hann er heldur ekki alvöru persóna, heldur leikinn af Jóni Gnarr.

Jón Gnarr fer á kostum í nýjum auglýsingum fyrir VR, en þar bregður hann sér aftur í gervi Georgs Bjarnfreðarsonar, sem hann gerði að þjóðþekktri persónu í Vaktar þáttaröðunum.

Í 

fyrstu auglýsingunni

 er Georg yfirmaður og væntanlega eigandi verslunarinnar Georgskjör, er ung stúlka mætir til hans í atvinnuviðtal.

Þá var fjallað um aðstæður á vinnustað í auglýsingu númer tvö.

Í þeirri þriðju er fjallað um veikindarétt starfsmanna.

Sjón er sögu ríkari:


Markmið VR með auglýsingunum er að vekja athygli á kjörum félagsmanna og Georg er ágætis viðmið um hvernig ekki á að gera hlutina. Auglýsingar verða alls fimm talsins.