Besserwisser, eða sjálfviti í íslenskri þýðingu, var fenginn frá útlöndum til að messa yfir hundrað nei-sinnum á vegum samtakanna Áfram Ísland og bókaútgáfunnar AB sem auglýstu viðburðinn með heilsíðum í sínu nafni að því er virðist til að leggja áherslu á að viðburðurinn væri ekki á þeirra vegum. Reynt var að halda fundinn í hátíðarsal Háskóla Íslands í þeim tilgangi að láta fólk fá það á tilfinninguna að Háskóli Íslands væri hallur undir neikvæðu hreyfingarnar á Íslandi. Sú aðgerð fór út um þúfur þegar ljóst varð að salurinn var pantaður á fölskum forsendum til að halda áróðursfund sem gengur ekki samkvæmt reglum um nýtingu á hátíðarsal Háskóla Íslands. Því varð að hrekjast með fundinn úti í bæ sem var ósköp eðlilegt enda kom erindið Háskóla Ísland alls ekkert við.
Orðið á götunni að öldungurinn Baudenbacher, sem var dómari við EFTA dómstólinn fyrir löngu, en sinnir nú lögmannsstörfum og hagsmunagæslu, ekki síst fyrir Rússa, enda mun Pútín vera einn af verðmætustu viðskiptavinum hans, hafi verið valinn sem verktaki í þeim tilgangi að gera ESB tortryggilegt. Skemmst er þess að minnast að Baudenbacher gerði sig gildandi í máli Vélfags gegn ríkissjóði Íslands en það fyrirtæki er í eigu rússneskra braskara í gegnum margvíslegar krókaleiðir.
Nú var þessi andstæðingur íslenska ríkisins fenginn til að útskýra fyrir Íslendingum að þeir hefðu ekki burði til að ráða málum sínum sjálfir í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hann taldi sig þess umkominn að segja að dómgreind Íslendinga væri ekki treystandi.
Annar sjálfviti, Ólafur Ragnar Grímsson, tók að sér að kynna ræðumanninn á þessari hundrað manna samkomu trúgjarnra nei-sinna. Sparaði hann ekki stóryrðin frekar en fyrri daginn þótt gengi stóryrðanna hafi fallið fyrir löngu. Að því búnu sat erlendi gesturinn og messaði yfir viðstöddum um að Evrópa væri „ekki aðlaðandi kostur fyrir Íslendinga“ – samkvæmt þeirri pöntun sem hann fékk sem verktaki en fróðlegt væri að heyra um fjárhæð þess reiknings sem hann sendir fyrir þjónustu sína – og hver borgar!
Orðið á götunni er að athyglisvert sé að þessi „heimsviðburður“ skyldi ekki vekja neina athygli fyrir utan uppslátt Morgunblaðsins sem var fyrirsjáanlegur. Sjónvarpsstöðvarnar RÚV og Sýn hafa ekki minnst á þetta frekar en útvarpsstöðvar. Einungis var fjallað um tilraun fundarboðenda til að svindla fundinum inn í hátíðarsal Háskóla Íslands sem reyndist vera sneypuför.
Merkilegt var að heyra þennan sjálfumglaða útlending halda því fram að allt væri þetta risavaxin plott ríkisstjórnarinnar, því markmið þjóðaratkvæðagreiðslunnar þann 29. ágúst væri ekki að fá heimild til að hefja viðræður og komast að því hverjir eru raunverulegir möguleikar Íslendinga heldur að tryggja að ekki yrði aftur snúið á vegferð Íslands inn í Evrópusambandið. Þessi útlendingur hefur greinilega ekki kynnt sér staðreyndir málsins. Ríkisstjórnin og Alþingi hafa ákveðið að komi til samnings við ESB verði hann lagður fyrir þjóðina, auk þess sem gera þarf breytingar á stjórnarskránni á tveimur þingum.
Engu verður svindlað fram hjá þjóðinni. Ekki á Íslandi – slíkt gæti gerst hjá vinum Baudenbachers í Rússlandi. En það er önnur saga.
Orðið á götunni er að engin eftirspurn sé eftir innflutningi hrokafullra sjálfvita til að predika yfir okkur að Íslendinga skorti dómgreind til að geta ráðið málum sínum sjálfir.