Hannes Hólmsteinn Gissurarson og Ragnar Árnason, báðir fyrrum prófessorar við Háskóla Íslands, skora á Silju Báru Ómarsdóttur rektor Háskóla Íslands að leiga hátíðarsal skólans undir opinn fyrirlestur svissneska lögfræðingsins Carls Baudenbachers um hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Líkt og Eyjan fjallaði um á fimmtudaginn birtist þann dag í Morgunblaðinu heilsíðuauglýsing um fyrirlesturinn og að honum stæðu Áfram Ísland og Almenna bókafélagið „í samstarfi við Rannsóknarsetur í stjórnmálum og efnahagsmálum við Félagsvísindastofnun.
Sjá einnig: Fengu hátíðarsal HÍ á fölskum forsendum
Í svari Silju Báru við fyrirspurn segir að Háskólinn hafi enga aðkomu að viðburðinum. „Í umsókn um leigu á salnum fyrir viðburðinn kom ekki fram að hann væri á vegum hreyfingarinnar „Áfram Ísland“ og hefði slík umsókn ekki verið samþykkt á grundvelli þeirra almennu sjónarmiða sem um salarleiguna gilda. Unnið er að því að finna annan vettvang fyrir viðburðinn.“ Þá sé búið að bjóða þeim annan sal en hátíðarsalinn til afnota.
Rannsóknarsetrið en ekki Áfram Ísland
Hannes Hólmsteinn birtir bréf síns og Ragnars til rektors á Facebook, þar segir meðal annars:
„Sama dag og auglýsingin birtist, 6. ágúst, höfðu tveir starfsmenn Háskólans samband við Ragnar Árnason og sögðu, að ekki kæmi til greina að standa við leigusamninginn um afnot af hátíðarsal Háskólans, því að þetta væri stjórnmálafundur, sem samtökin Áfram Ísland og Almenna bókafélagið héldu. Hefði það ekki verið upplýst, þegar salurinn var pantaður,“ segir í bréfinu.
„Þetta er alrangt. Þessi misskilningur er óskiljanlegur. Það er Rannsóknarsetur um stjórnmál og efnahagsmál í Félagsvísindastofnun, sem stendur að fundinum, ekki Áfram Ísland eða Almenna bókafélagið.“
Þá hafi Ragnar ekki gefið upp neinar rangar upplýsingar þegar hann pantaði salinn þar sem það hafi ekki verið ljóst hvaða stofnun myndi standa að fyrirlestrinum.
„Við teljum það væntanlega óafvitandi en í reynd atlögu að fræðilegu (akademísku) frelsi og hlutverki og markmiðum Háskóla Íslands, ef þessum heimskunna fræðimanni er neitað um að flytja fræðilegan fyrirlestur í Háskóla Íslands á þeim vettvangi, sem hér um ræðir, af því að einhverjir kunna að vera ósáttir við hina fræðilega nálgun hans eða við þá aðila, sem athygli vilja vekja á hinum fræðilega fyrirlestri hans.“
Ritskoðun
Er svo vísað í erindi David Miliband, sem kom hingað í boði Ólafs Ragnars Grímssonar þáverandi forseta Íslands árið 2012 og hélt erindi í hátíðarsalnum.
„Engar athugasemdir voru gerðar við þann viðburð. Var Miliband þó utanríkisráðherra þeirrar ríkisstjórnar Bretlands, sem sett hafði hryðjuverkalög á Ísland árið 2008. Nú er hins vegar verið að bjóða heimskunnum fræðimanni, ekki stjórnmálamanni eins og Miliband, að halda í Háskóla Íslands fræðilegan fyrirlestur um Evrópurétt.“
Hannes og Ragnar segja þetta ritskoðun:
„Við krefjumst þess því, að Háskóli Íslands standi við leigusamning þann, sem gerður var án nokkurra skilyrða við Ragnar Árnason 15. júlí 2026, en taki ekki allt í einu upp á að ritskoða heimskunnan og virtan fræðimann vegna hugsanlegra skoðana hans eða vegna áhuga innlendra aðila á hinum fræðilega fyrirlestri hans. Þetta yrði fordæmalaust og örlagaríkt skref fyrir Háskólann. Þar eð fyrirlestur dr. Carls Baudenbachers á að vera eftir þrjá daga, hinn 10. ágúst, þá óskum við eftir tafarlausum svörum rektors. Skorum við á hana að standa við gerðan samning.“