Í dag birtist í Morgunblaðinu heilsíðuauglýsing þar sem auglýstur var opinn fyrirlestur svissneska lögfræðingsins Carls Baudenbachers um álitaefni varðandi hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu. Fundarstjóri var auglýstur Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti. Fyrirlesturinn var auglýstur í hátíðarsal Háskóla Íslands.
Fyrir þessum fyrirlestri standa Áfram Ísland og Almenna bókafélagið „í samstarfi við Rannsóknarsetur í stjórnmálum og efnahagsmálum við Félagsvísindastofnun.
Eyjan fékk ábendingar um að óánægja ríkti meðal kennara við HÍ með að samtökum á borð við Áfram Ísland væri veittur aðgangur að hátíðarsal skólans fyrir einhliða áróðursfund. Hér væri um pólitíska misnotkun á orðspori skólans að ræða. Áróðurinn yrði einhliða og öðrum sjónarmiðum ekki hleypt að.
Í gegnum tíðina hafa verið haldnir fundir á vegum HÍ þar sem stjórnmálamönnum er boðið en þá til að rökræða, ekki í hreinu áróðursskyni fyrir einhverja tiltekna stefnu.
Innan Háskólans hafa margir áhyggjur af því að það gefi of sterklega í skyn að Háskóli Íslands styðji málstað nei-sinna ef einhliða áróður þeirra fær sjálfan hátíðarsalinn til afnota.
Við skoðun á heimasíðu Félagsvísindastofnunar er ekki að sjá eitt einasta orð um Rannsóknarsetur stjórnmála og efnahagsmála og Eyjan hefur fengið staðfest að setrið er ekki undir Félagsvísindastofnun. Setrið finnst á heimasíðu HÍ og þar kemur í ljós að þetta tiltekna rannsóknarsetur hefur birt mikið efni eftir Hannes Hólmstein Gissurarson, fyrrverandi prófessor við HÍ, auk mikils efnis um hann. Á heimasíðunni er hann líka tiltekinn sem forstöðumaður setursins. Heimasíða setursins virðist ekki hafa verið uppfærð í einhver ár.
Eyjan hefur fyrir því heimildir að Ragnar Árnason, annar fyrrverandi prófessor við HÍ, sé nú tekinn við sem forstöðumaður setursins, en þeir Ragnar og Hannes hafa lengi verið vopnabræður í baráttu fyrir hagsmunum stórútgerðarinnar í landinu. Eftir því sem Eyjan kemst næst var það Ragnar sem sótti um hátíðarsal Háskólans fyrir þennan viðburð.
Eyjan leitaði eftir því við Silju Báru Ómarsdóttir, rektor HÍ, hvort aðilar úti í bæ gætu fengið hátíðarsal skólans undir áróðursfundi, líkt og þennan. Í svari hennar segir: „Hátíðasalur í Aðalbyggingu er aðeins leigður út fyrir viðburði sem eru á vegum Háskóla Íslands eða tengjast starfsemi hans beint. Háskóli Íslands hefur enga aðkomu að þeim viðburði sem hér um ræðir. Í umsókn um leigu á salnum fyrir viðburðinn kom ekki fram að hann væri á vegum hreyfingarinnar „Áfram Ísland“ og hefði slík umsókn ekki verið samþykkt á grundvelli þeirra almennu sjónarmiða sem um salarleiguna gilda. Unnið er að því að finna annan vettvang fyrir viðburðinn.“
Í öðru svari rektors kom fram að búið sé að bjóða skipuleggjendum fyrirlestursins annan sal innan HÍ til afnota.
Að ofangreindu er ljóst að þeir sem óskuðu eftir og fengu afnot af hátíðarsal Háskólans fyrir viðburðinn á mánudaginn hafa gætt þess vel að ekki kæmi fram hverjir það eru sem raunverulega standa fyrir viðburðinum. Þeir hafa vitað gjörla að ef fram kæmi að Áfram Ísland væri með í bígerð áróðursfund, þar sem eingöngu kæmu fram sjónarmið nei-sinna, stæði hátíðarsalurinn þeim ekki til boða.