Samfylkingin eykur fylgi sitt milli kannana á toppnum um tæp tvö prósentustig og fer nú í 28 prósent samkvæmt þjóðarpúlsi Gallups sem birtur var í gær. Það gæfi flokknum 20 þingsæti. Sjálfstæðisflokkurinn er í öðru sæti með 25 prósent sem er nær óbreytt frá síðustu könnun. Flokkurinn hefur að nýju náð örugglega öðru sætinu af Miðflokknum sem hefur verið á stöðugri niðurleið allt þetta ár samkvæmt þjóðarpúlsi Gallups, náði mest 22 prósenta mælingu í byrjun þessa árs.
Orðið á götunni er að með þessu næði Sjálfstæðisflokkurinn 17 þingsætum en 14,6 prósenta fylgi Miðflokksins gæfi þeim 10 þingsæti. Framsókn mælist með 5,8 prósenta stuðning sem gæfi fjögur þingsæti. Hagur flokksins hefur alls ekki vænkast við formannsskipti fyrr á árinu.
Fylgi Viðreisnar er óbreytt milli kannana sem skilaði flokknum átta þingsætum og Flokkur fólksins bætir við sig, fengi 5,2 prósent og fjóra menn kjörna. Aðrir fengju samtals 10 prósent og kæmu engum mönnum á þing.
Stjórnarflokkarnir fengju þannig 32 menn kjörna og stjórnin héldi velli.
Orðið á götunni er að með þessari könnun sé lokið þeim góða kafla hjá Sjálfstæðisflokknum sem árangur í sveitarstjórnarkosningunum í maí skilaði flokknum. Miðflokkurinn heldur áfram að missa fylgi sem sýnir að kjósendur átta sig sífellt betur á öfgafullum málflutningi forystumanna flokksins sem virkar ekki vel.
Samfylkingin er komin á skrið og bætir við forystu sína á toppnum. Ætla má að sú þróun haldi áfram eftir því sem ráðherrar flokksins koma nú meira fram, einkum hinn vinsæli formaður flokksins, Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.