Eyjan

Orðið á götunni: Formaður íslensku samninganefndarinnar

Mynd

Spennan eykst fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um framhald aðildarviðræðna við ESB á laugardaginn. Samkvæmt skoðanakönnunum er mjótt á mununum milli já og nei en já-ið er þó með forystu. Allt getur því oltið á kosningaþátttöku og báðar fylkingar leggja nú mikla áherslu á að hvetja fólk til að nýta kosningaréttinn.

Verði já-ið ofan á er ljóst að skipa þarf samninganefnd til að ljúka samningaviðræðum. Miklu skiptir að almennt traust ríki til samninganefndarinnar og þeirra sem hana skipa, ekki síst í ljósi þess hve skiptar skoðanir eru meðal fólks um það hvort ljúka eigi þessum viðræðum.

Þegar Ísland sótti um fyrir tæpum tveimur áratugum leiddi samninganefnd Íslands Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra, sem nýtur mikils trausts og hefur mikla og góða þekkingu á viðfangsefninu. Sjálfgefið er að hann setjist á samninganefndina núna.

Orðið á götunni er að innan utanríkisþjónustunnar sé mikið af reynslumiklu hæfileikafólki sem bært sé til að semja fyrir hönd þjóðarinnar. Í saumar bættist enn liðsauki þegar Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, tók við sem sendiherra í London. Einsýnt þykir að hún muni einnig taka sæti í samninganefnd Íslands.

Orðið á götunni er að ákveðinn orðrómur um væntanlegan formann íslensku samninganefndarinnar gerist sífellt háværari þó að eðli máls vegna hafi ekkert fengist staðfest +i þeim efnum.

Orðið á götunni er að einn sé sá maður sem þjóðin, bæði þeir sem neikvæðir eru og jákvæðir, geti sameinast um, maður sem öll þjóðin þekkir og treystir. Sá máður heitir Guðni Th. Jóhannesson. Sem forseti Íslands sameinaði hann þjóðina og ólíkt forvera sínum, Ólafi Ragnari Grímssyni, sem varð þaulsetinn á forsetastóli, steig Guðni upp eftir tvö kjörtímabil og sýndi með því að hann sækist hvorki eftir metorðum né völdum.

Orðið á götunni er að rík samstaða geti orðið um Guðna Th. sem formann íslensku samninganefndarinnar