Eyjan

Orðið á götunni: Plottið mistókst – Baudenbacher Rússavinur vinnur með nei-sinnum

Mynd

Hannes Hólmsteinn Gissurarson og Ragnar Árnason, eftirlaunaþegar sem eitt sinn voru prófessorar við Háskóla Íslands, ná nú ekki upp í nefið á sér af bræði og vanþóknunar vegna þess að Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, hefur tilkynnt þeim að pólitískur áróðursfundur gegn því að Íslendingar fái að kynna sér aðildarsamning við ESB verði ekki hýstur í hátíðarsal Háskólans.

Segja má að þeir séu með böggum hildar vegna málsins og í hópi þeirra sem finna sárlega til með þeim og misbýður óréttlætið eru engir aðrir en Jón Gunnarsson og Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, sem allir vita að mega aldrei neitt aumt sjá og standa ávallt með þeim sem minna mega sín, samanber vörnin fyrir sægreifana í veiðigjaldamálinu í fyrra.

Málið nú snýst um að hingað til lands var boðið svissneskum lögfræðingi, Carl Baudenbacher, sem eitt sinn var dómari við EFTA dómstólinn. Baudenbacher þessi hefur, eftir að dómarastörfum hans lauk, gert það sem margir lögfræðingar gera, unnið fyrir sína skjólstæðinga og rukkað fyrir það. Menn verða jú að lifa. Að undanförnu hefur mest borið á hagsmunagæslu hans fyrir Rússa og ætla má að Pútín sé líkast til hans verðmætasti kúnni. Skemmst er þess að minnast að Baudenbacher gerði sig gildandi í máli Vélfags, félags í eigu rússnesks pótintáta eftir ýmsum kræklóttum hliðarleiðum, og hneykslaðist mjög á því að íslensk stjórnvöld takmörkuðu starfsemi þess í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands um refsiaðgerðir gegn stríðsríkinu Rússlandi.

Þeir Hannes Hólmsteinn og Ragnar höfðu sem sagt pantað hátíðarsal Háskóla Íslands fyrir akademískan fund og sögðu fundinn vera á vegum háskólasamfélagsins. Alveg fórst fyrir hjá þeim að geta þess að í raun var fundurinn á vegum samtakanna Áfram Ísland, sem berst hatrammlega gegn því að Íslendingar fái að taka upplýsta ákvörðun um það hvort Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið.

Orðið á götunni er að það hafi komið flatt upp á marga í Háskólanum þegar heilsíðuauglýsing birtist í Morgunblaðinu í síðustu viku þar sem fram kom að Áfram Ísland og Almenna bókafélagið „í samstarfi við Rannsóknarsetur í stjórnmálum og efnahagsmálum við Félagsvísindastofnun“ boðuðu til fundar í hátíðarsal Háskóla Íslands þar sem Carl Baudenbacher flytti fyrirlestur um Ísland og ESB, undir fundarstjórn Ólafs Ragnars Grímssonar.

Orðið á götunni er nefnilega að enginn í Háskólanum hafi vitað að því að fundurinn í hátíðarsalnum ætti að vera einhliða áróðursfundur á vegum samtakanna Áfram Ísland. Þá mun það hafa komið forsvarsmönnum félagsvísindadeildar Háskólans og Félagsvísindastofnunar Háskóla Ísland í opna skjöldu að verið væri að spyrða Félagsvísindastofnun við þennan fund. Fyrir það fyrsta hafði ekki verið beðið um leyfi til slíks og svo var það hitt, að Rannsóknarsetur í stjórnmálum og efnahagsmálum heyrir alls ekki undir Félagsvísindastofnun. Þetta setur mun vera afdankað batterí, frá því Hannes Hólmsteinn var enn starfandi kennari og engin starfsemi verið í því um áraraðir.

Skiljanlega afturkallaði háskólarektor boðið um hátíðarsalinn þegar í ljós kom hvernig í hlutunum lá. Í kjölfarið hneyksluðust margir Sjálfstæðismenn, Áfram Ísland kannaðist ekkert við að hafa neina aðkomu að hinum auglýsta fundi og orðið á götunni er að vitaskuld hafi það verið til að árétta enga aðkomu samtakanna að fundinum að í heilsíðu auglýsingu, sem birt hefur verið aftur síðan, kemur skýrt fram að Áfram Ísland haldi þennan fund.

Orðið á götunni er að það hljóti að hafa verið vandræðalegt fyrir Hannes og co. þegar síðan birtist staðfesting frá lögmannsstofu Baudenbachers sjálfs að hann hefði beinlínis fengið boð frá samtökunum Áfram Ísland um að flytja auglýstan fyrirlestur og þegið það boð.

Orðið á götunni er að athyglisvert sé líka að sjá Almenna bókafélagið auglýst sem fundarhaldara. AB gefur m.a. út bækur Davids Walliams á Íslandi. Það er sagt vera að 50% í eigu Jónasar Sigurgeirssonar, eiginmanns Rósu Guðbjartsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Stjórnarformaður er Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri og mikill Sjálfstæðismaður.

Orðið á götunni er að þarna hafi farið út um þúfur úthugsað plott um að gera umgjörð áróðursfundar nei-sinna slíka að almenningur gæti ekki annað en haldið að Háskóli Íslands væri í nei-liðinu.

Orðið á götunni er að Silja Bára Ómarsdóttir eigi heiður skilinn fyrir að bregðast við af festu þegar ljóst var að reynt var að misnota Háskóla Íslands.