Nína Richter skrifar: Hver drap skírnarveisluna?

Ég var að ræða íslenska menningu við hollenska vinkonu mína og hvers konar framlags væri ætlast til af manni í atvinnulífinu. Við vorum sammála um að sérhæfingin hér væri almennt grynnri, sökum fólksfæðar. Mig grunar að bændasamfélagið spili þar stórt hlutverk.

Svarthöfði skrifar: Lítt ritfærir birta gullaldartexta

Yfir Svarthöfða kemur stundum eftirsjá vegna alls þess tíma sem hann hefur varið í að skoða samfélagsmiðla. Til hvers að reyna að lifa heilsusamlega og lengja þannig jarðlífið þegar lengingunni er varið á samfélagsmiðlum? Oftar en ekki bætir það sem þar ber fyrir augu engu við.

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Takk fyrir samtalið

Nú styttist í að þjóðin taki ákvörðun um það hvort Ísland eigi að ljúka viðræðum um mögulega aðild að Evrópusambandinu. Það er óhætt að segja að atkvæðagreiðslan hafi tekið mikið pláss í samfélagsumræðunni. Persónulega fagna ég því, þó sumum þyki nóg um.

Björn Jón skrifar: Gagnslaus stjórnmál

Svo virðist sem ríkisstjórn Friedrichs Merz Þýskalandskanslara ætli að mistakast það ætlunarverk sitt að hækka eftirlaunaaldur í landinu. Minn eftirlætis stjórnmálaskýrandi, Ulf Poschardt, hjá stórblaðinu Welt, orðar það svo að þar með verði enn um sinn bið á nauðsynlegu „afturhvarfi til hagfræðileg…

Óttar Guðmundsson skrifar: Skilnaðarferlið

Í Brennu-Njálssögu er sagt frá dramatískum skilnaði hjónanna Þráins Sigfússonar og Þórhildar skáldkonu. Rifrildi í brúðkaupsveislu að Hlíðarenda endaði með því að Þráinn rak Þórhildi úr veislunni og bað sér annarrar konu.

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: ESB og skuldir aðildarríkja

Eitt þeirra atriða sem reglulega skýtur upp kollinum í umræðunni um ESB er að Ísland gæti með aðild tekið á sig ábyrgð á skuldum annarra aðildarríkja. Síður er rætt, ef þetta væri rétt, hvort önnur ríki, sem skulda minna en Íslendingar, myndu þá líka borga skuldir Íslendinga!? Því miður er það ekki …

Nína Richter skrifar: ungt fólk kann ekki StAfsEtnInGu

Lestrarkunnáttu ungs fólks fer aftur og heimur versnandi fer. Við sjáum fyrirsagnir um börn sem lesa minna, ungmenni sem eiga erfiðara með langa texta og kynslóð sem virðist hafa skipt heilum setningum út fyrir skammstafanir, brotakennt mál og alls konar undarlegar stafsetningarvenjur.

Björn Jón skrifar: Gamlar umræður um Evrópumálin

Í góðæri ársins 1987 reis nokkur umræða um hvort rétt væri að heimila útlendingum vinnu hér í meira mæli enda vinnuaflsskortur tilfinnanlegur. Að ótöldum öðrum norrænum ríkisborgurum voru um 700 útlendingar með atvinnuleyfi hér á þeim tíma.