Gunnlaugur B. Hjartarson skrifar: Hvenær deyr lýðræðið?
Lýðræði deyr ekki þegar skriðdrekar rúlla inn á torg. Það deyr þegar sannleikurinn verður valkvæð stærð í stjórnmálum. Lýðræðið er ekki sjálfgefið. Það er ekki náttúrulögmál. Það er samkomulag um að sannleikurinn skipti máli, að leikreglurnar gildi fyrir alla og að valdið lúti aðhaldi.