Einfalt reiknidæmi sýnir að núverandi vaxtaumhverfi getur kostað unga fjölskyldu um 2,25 milljónir króna á ári – og jafngilt rúmlega fjórum starfsárum yfir líftíma 30 ára húsnæðisláns.
Reiknidæmi – staðan árið 2026:
50 milljóna króna húsnæðislán
Vaxtamunur: 5,9%
(Samsvarar núverandi mun á stýrivöxtum Íslands og Danmerkur.)
- Um 188 þúsund krónur hærri greiðslubyrði á mánuði.
- Um 2,25 milljónir króna á ári.
- Um 540 vinnustundir.
- Jafngildir rúmlega þriggja mánaða fullri vinnu á einu ári.
Þetta er einfalt reiknidæmi sem á að sýna stærðargráðuna. Stýrivextir og húsnæðislánavextir eru ekki sami hluturinn, en stýrivextir hafa afgerandi áhrif á vaxtaumhverfið sem heimili og fyrirtæki búa við.
Þú ert um þrítugt með fasta vinnu. Þú og maki þinn eruð að kaupa ykkar fyrstu íbúð. Kannski eruð þið nýbúin að eignast ykkar fyrsta barn. Þetta eiga að vera árin þegar fjölskyldan byggir upp framtíð sína.
En hvað ef stór hluti tekna ykkar fer ekki í heimilið, börnin eða sparnaðinn heldur í hærri fjármagnskostnað?
Ef þú fengir þessa þrjá mánuði til baka...
Stöldrum aðeins við. Ef þú fengir þessa þrjá mánuði til baka, hvernig myndir þú verja þeim?
Myndir þú:
- verja meiri tíma með börnunum?
- greiða hraðar niður húsnæðislánið?
- byggja upp eigið fyrirtæki?
- mennta þig frekar?
- eða einfaldlega njóta lífsins betur?
Þetta eru ekki bara peningar. Þetta er tíminn – tíminn sem við fáum aldrei til baka.
Þess vegna vaknar eðlileg spurning:
Er núverandi vaxtaumhverfi að leggja óþarfa fjárhagslegt álag á ungar fjölskyldur?
Hvað ef þetta vaxtaumhverfi verður áfram við lýði?
Til að meta langtímaáhrifin skulum við nú nota enn varfærnara reiknidæmi.
Í stað þess að reikna með 5,9% vaxtamun, sem er staðan árið 2026, reiknum við aðeins með 4% vaxtamun.
Forsendur reiknidæmis
- 50 milljóna króna óverðtryggt húsnæðislán.
- 30 ára lánstími.
- 4% vaxtamunur (3% og 7% vextir).
- Samkvæmt Hagstofu Íslands var miðgildi reglulegra launa í fullu starfi 826 þúsund krónur á mánuði árið 2025.
- Í reiknidæminu er miðað við 600 þúsund krónur í ráðstöfunartekjur á mánuði.
- Gert er ráð fyrir 3% árlegri hækkun ráðstöfunartekna.
Niðurstaðan kemur flestum á óvart. Viðbótarvaxtakostnaðurinn verður um 44 milljónir króna.
Til að afla þeirra tekna þarf að vinna um 8.500 vinnustundir.
Það jafngildir 49 mánuðum í fullri vinnu, sem er rúmlega fjórum árum af starfsævinni.
Athugið að þetta er varfært reiknidæmi í samanburði við stöðuna núna árið 2026.
Um reiknidæmið
Markmið þessarar greinar er ekki að bera saman allar tegundir húsnæðislána.
Markmiðið er að sýna stærðargráðuna á þeim kostnaði sem getur fylgt því að búa við viðvarandi hærra vaxtaumhverfi. Reiknidæmið byggir á óverðtryggðu láni, þar sem þannig er auðveldast að sjá áhrif vaxtamunar.
Verðtryggð lán breyta ekki meginniðurstöðunni. Þau lækka oft greiðslubyrðina í upphafi en færa stærri hluta kostnaðarins til síðari ára. Við viðvarandi verðbólgu getur heildarkostnaðurinn orðið enn meiri.
Fyrstu tíu árin skipta mestu
Þetta er tímabilið þegar mest reynir á. Þá kaupir fólk sína fyrstu íbúð og eignast oft börnin. Þá eru tekjurnar yfirleitt lægri. En útgjöldin vegna heimilis og barna eru þá líka mest.
Í 30 ára reiknidæminu jafngildir viðbótarvaxtakostnaðurinn fyrstu tíu árin um 3.700 vinnustundum.
Það eru rúmlega 30 vinnustundir í hverjum mánuði.
Næstum ein aukavinnuvika í hverjum mánuði í tíu ár.
Það er einmitt á þessum árum sem samfélagið ætti að styðja unga fólkið mest. Í stað þess leggur hátt vaxtaumhverfi auknar byrðar á heimilin þegar þau eru viðkvæmust.
Þetta snýst líka um atvinnulífið
Sama vaxtaumhverfi mætir íslenskum fyrirtækjum. Þegar fjármagn verður dýrara verða færri fjárfestingar arðbærar. Frumkvöðlar eiga erfiðara með að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd. Smærri fyrirtæki vaxa hægar og margar góðar hugmyndir verða aldrei að veruleika.
Við höfum einnig séð stór og öflug íslensk fyrirtæki, eins og Marel og Kerecis, sækja í stærri alþjóðlega fjármagnsmarkaði. Ástæður þess eru margar, en stærð og dýpt fjármagnsmarkaða skiptir verulegu máli.
Þetta hefur áhrif á nýsköpun, verðmætasköpun og það verða til færri störf á Íslandi.
Er þessi vaxtamunur eitthvað nýtt?
Árið 2014 benti Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, í skýrslu sem unnin var fyrir Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð Íslands og Félag atvinnurekenda, á að Ísland hefði um langt skeið búið við mun hærra vaxtaumhverfi en Evrópa. Þar kom fram að skammtímavextir höfðu verið 4–16 prósentustigum hærri og langtímavextir 4–6 prósentustigum hærri.
Tólf árum síðar er munurinn á stýrivöxtum Íslands og Danmerkur enn 5,9%.
Það vekur spurningar eins og:
- Er þetta það vaxtaumhverfi sem við viljum bjóða ungu fólki á Íslandi?
- Er eðlilegt að fyrstu ár fjölskyldulífsins verði svona fjárhagslega erfið?
- Er eðlilegt að íslensk fyrirtæki beri hærri fjármagnskostnað en helstu samkeppnisþjóðir okkar?
Hvers konar framtíð viljum við?
Í ágúst er þjóðin ekki að kjósa um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Við erum að kjósa um hvort við viljum ljúka viðræðum og sjá hvaða samning Ísland getur fengið.
Ef möguleiki er á að skapa stöðugra vaxtaumhverfi, lægri fjármagnskostnað og betri samkeppnisskilyrði fyrir íslensk heimili og fyrirtæki, eigum við ekki að minnsta kosti að kynna okkur hvaða samning við getum náð?
Því stærsta spurningin snýst ekki fyrst og fremst um gjaldmiðla.
Hún snýst um hvernig við getum betur tryggt öryggi og fjárhag unga fólksins okkar.
Höfundur er viðskiptafræðingur (cand. oecon.) – MS í stjórnun og stefnumótun, kennari og fyrirlesari um leiðtogamenningu og Qigong lífsorku – lifsraekt.is