Unga Ísland.
Þetta er landið þitt.
Þinn tími.
Þín framtíð.
Þú átt ekki að sætta þig
við færri tækifæri en Danir.
Þú átt land auðlinda.
Hafið.
Orkuna.
Moldina.
Vatnið.
Hugvitið.
Þú átt að geta byggt hér.
Skapað hér.
Elskað hér.
Fest hér rætur.
Og látið draumana
ná langt út fyrir strendur landsins.
RÆTURNAR Á ÍSLANDI.
VÆNGIR OPNA HEIMINN.
En í þessu landi
býr líka gamalt tröll.
KRÓNUTRÖLLIÐ
Það sefur aldrei lengi.
Það étur launin þin
með verðbólgu.
Það étur draumana
með háum vöxtum.
Það nartar í sparnaðinn
og bregður fæti fyrir heimilið.
Það étur líka
jarðveginn undan nýjum hugmyndum.
Sprotinn sem vill vaxa.
Fyrirtækið sem vill verða stórt.
Starfið sem varð aldrei til.
TRÖLLIÐ FÆR ALDREI NÓG.
En tröll óttast birtuna.
LÁTUM SÓLINA SKÍNA.
LÁTUM KRÓNUTRÖLLIÐ
VERÐA AÐ STEINI MINNINGANNA.
Unga Ísland.
Gerðu kröfur.
Krefstu þess
að draumurinn þinn sé ekki dýrari
bara af því að þú fæddist á Íslandi.
Krefstu sömu tækifæra
og ungur Dani.
Til að mennta þig.
Til að eignast heimili.
Til að stofna fyrirtæki.
Til að skapa störf.
Til að láta hugmynd
verða að veruleika.
Við eigum auðlindir.
Nýtum þær til heilla.
ÞÚ ÁTT HLUTDEILD Í ÞEIM.
ÞÆR EIGA AÐ HJÁLPA ÞÉR
AÐ BYGGJA OG SKAPA
ÞÍNA FRAMTÍÐ.
Og framtíðin
vex líka úr jörðinni.
Fáum ný tækifæri
til að rækta landið.
Rækta þekkinguna.
Rækta nýjar hugmyndir.
Tryggjum fæðuöryggi
með hugviti nýrra kynslóða.
Gefum ungum bændum
ný verkfæri,
nýja markaði,
ný tækifæri.
Byggjum Landklasa Íslands.
RÆKTUM LANDIÐ.
RÆKTUM HUGVITIÐ.
SKÖPUM FRAMTÍÐINA.
Og við sem eldri erum
segjum við ykkur:
TAKIÐ YKKAR PLÁSS.
Ekki óttanum okkar.
Ekki gömlu svörin.
Takið við landinu.
Spyrjið nýrra spurninga.
Opnið nýjar dyr.
Gerið meiri kröfur.
Því þegar þið blómstrið
blómstrar Ísland.
Og við öll
njótum ávaxtanna.
Ef unga fólkið fer
fer ekki aðeins fólkið.
Hugrekkið fer.
Þekkingin fer.
Orkan fer.
Hugmyndirnar fara.
Og framtíðin með.
YKKAR FRAMTÍÐ
ER OKKAR FRAMTÍÐ.
Unga Ísland
þarf að velja.
Ekki um lokaorðið.
Heldur um réttinn
til að fá að sjá.
SJÁ SAMNINGINN.
SJÁ TÆKIFÆRIN.
SJÁ MÖGULEIKA.
Og síðan að
VELJA.
Ekki láta aðra
loka dyrunum þínum.
Ekki láta óttann
setja fótinn fyrir þig.
Og ekki sætta þig við
að Tröllið éti framtíðina þína.
ÞORÐU AÐ SJÁ.
ÞORÐU AÐ SPYRJA.
ÞORÐU AÐ KREFJAST.
ÞORÐU AÐ VELJA
ÞÍNA FRAMTÍÐ.
Því hugrekki
er að opna augun,
skoða leiðirnar
og velja
hvaða dyr við viljum opna.
UNGA ÍSLAND —
TAKTU FORYSTUNA.
Þetta er landið þitt.
Þetta er tíminn þinn.
ÞETTA ER FRAMTÍÐIN ÞÍN.
Ekki láta Tröllið éta hana.
SJÁUM SAMAN FRAMTÍÐ.
SEGJUM JÁ Í ÁGÚST.
Höfundur er viðskiptafræðingur og fv. stjórnandi. Kennari og fyrirlesari um leiðtoga og Qigong lífsorku – lifsraekt.is