Eyjan

Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Eldri Íslendingar

Mynd

HVER ER OKKAR ÁBYRGÐ?

Við sem höfum
fengið að njóta
friðar,
frelsis,
velferðar
og tækifæra.

Við stöndum á herðum
þeirra sem byggðu Ísland
af dugnaði,
hugrekki
og bjartsýni.

Nú spyr framtíðin

HVER ER OKKAR ÁBYRGÐ?

Ábyrgð okkar
er ekki aðeins
að varðveita.

Heldur að skapa.

Að skilja eftir
sterkara samfélag
en við tókum við.

Meira traust.

Meira öryggi.

Fleiri tækifæri.

Meiri von.

ÞÚ TRYGGIR EKKI EFTIR Á.

Við vissum ekki
fyrir þrjátíu árum
hvernig heimurinn
yrði í dag.

Við vitum ekki
hvernig hann verður
eftir þrjátíu ár.

Við vitum ekki
hvaða breytingar bíða.

Hvaða áskoranir.

Hvaða tækifæri.

En við getum ákveðið
að opna á fleiri tækifæri 
fyrir börn framtíðarinnar.

MEÐ HUGREKKI.
MEÐ VÍÐSÝNI.
HÖLDUM DYRUNUM OPNUM.

Við viljum
að börnin okkar

eigi sömu tækifæri
og ungmenni í Danmörku.

Tækifæri
til náms.

Til heimilis.

Til fjölbreyttra starfa.

Til að stofna fyrirtæki.

Til að láta hugmynd
verða að veruleika
á Íslandi.

Við viljum
að Ísland laði að sér
þekkingu,
nýsköpun,
fjárfestingu
og verðmæt störf.

Við viljum
að fleiri draumar
fæðist á Íslandi og
verði að veruleika hér.

Við eigum
Hafið.

Landið.

Orkuna.

Vatnið.

Hugvitið.

Við skulum
nýta þessar gjafir
af ábyrgð
og sjálfbærni.

Tryggja fæðuöryggi.

Byggja samfélag
þar sem komandi kynslóðir
geta staðið
styrkum fótum.

RÆKTUM LANDIÐ.
RÆKTUM HUGVITIÐ.
RÆKTUM VINÁTTUNA.

Fyrir hamingjuna 
þurfum við að rækta

Friðinn.

Friður er ekki sjálfgefinn.

Friður verður til
þegar við hlustum.

Þegar þjóðir tala saman.

Þegar traustið
er sterkari en óttinn.

Ótti lokar dyrum.

Ótti byggir múra.

Ótti sundrar.

En vinátta
byggir brýr.

Samstarf
byggir traust.

Traustið
er grunnur friðar.

FRIÐURINN ER GRUNNUR HAMINGJUNNAR.

Íslendingar eru fámenn þjóð.

En lítil þjóð
getur haft mikil áhrif.

Ekki með valdi.

Heldur með virðingu.

Með samvinnu.

Með sátt.

Með vilja
til að tengja þjóðir saman.

Látum Ísland
vera rödd friðar.

Rödd samvinnu.

Rödd vonar.

Því framtíðin
verður ekki byggð
á ótta.

Heldur á trausti.

Sjálfstæði
er ekki að standa ein.

Sjálfstæði
er að geta staðið örugg
með traustum vinum.

Að eiga samstarf
sem styrkir okkur
þegar á reynir.

Að eiga efnahag
sem stendur af sér storma.

Að eiga samfélag
þar sem unga fólkið
trúir á og vill
búa áfram á Íslandi.

Við sem eldri erum

Veljum ekki
framtíðina
fyrir unga fólkið.

Við eigum
að halda dyrunum opnum.

Svo unga fólkið fái

að sjá.

Að læra.

Að bera saman.

Að velja.

Það er ábyrgð okkar.

ELDRI ÍSLENDINGAR.

Gefum næstu kynslóð

meira frelsi -
ekki minna.

Meiri möguleika -
ekki færri tækifæri.

Meira öryggi -
ekki meiri ótta.

Höldum dyrunum opnum.

fyrir gæfuríkri framtíð.

Fyrir börnin okkar.

Fyrir barnabörnin.

Fyrir Ísland.

SJÁUM SAMAN FRAMTÍÐ.

LOKUM EKKI DYRUM.

TÖKUM ÞÁTT Í AÐ SKAPA GÆFURÍKA FRAMTÍÐ.