Aukin gagnrýni hefur heyrst í garð samfélagsmiðilsins TikTok og kallað hefur verið eftir því að fyrirtækið grípi til aðgerða vegna efnis á miðlinum sem er sagt hvetja börn og ungmenni til hegðunar sem getur haft skelfilegar afleiðingar eða beinlínis ýtt undir óhæfuverk. Hvatinn að þessu eru hörmungaratburðir í þremur löndum, umferðarslys í Bretlandi þar sem sjö manns létust, umferðarslys á Írlandi þar sem fimm manns létust og sveðjuárás í sænskum framhaldsskóla þar sem unglingsstúlka lét lífið. Talið er að myndefni á TikTok hafi átt sinn þátt í báðum atburðum
Í fjölmiðlum í Bretlandi hefur talsvert verið fjallað um umrætt bílslys en það varð í nágrenni Middlesbrough á Norður-Englandi en það varð með þeim hætti að bíll sem var ekið á öfugum vegarhelmingi lenti í árekstri við lögreglubíl, sem hafði verið kallaður til aðstoðar við að elta fyrrnefnda bílinn.
Annar lögreglubíll var að elta bílinn en hætti því þegar ökumaðurinn fór að aka honum á röngum vegarhelmingi. Örskömmu síðar var bílnum ekið framan á annan lögreglubíl sem var á leiðinni til að taka þátt í eftirförinni. Í lögreglubílnum voru tveir lögreglumenn sem létust báðir en í bílnum sem verið var að elta voru þrír ungir menn á aldrinum 17-18 ára og tveir sem voru 23 ára en þeir létust allir.
Glæpir
Breskir fjölmiðlar greina frá því að fjórir af ungu mönnunum fimm hafi verið á sakaskrá fyrir margvísleg brot, þar á meðal fyrir ofbeldi, vörslu fíkniefna, vopnalagabrot og þjófnaði.
Lögreglan var að elta bíl þeirra eftir að tilkynning hafði borist um glæfraakstur tveggja bíla en búið er að finna hinn bílinn sem var bendlaður við athæfið.
Rannsóknin á slysinu hefur undið upp á sig en fyrr í dag var greint frá því að 12 manns á aldrinum 19-61 árs hefðu verið handtekin vegna rannsóknarinnar. Fólkið er ýmist grunað um þátttöku í skipulagðri glæpastarfsemi, ólöglega vörslu skotvopna, hótanir, fíkniefnasölu, o.fl.
Hvatning til glæfraaksturs
Eins og áður segir hófst atburðarásin eftir tilkynningu um glæfraakstur tveggja bifreiða, þeirrar bifreiðar sem ungu mennirnir sem dóu voru í og annarrar sem var notuð til skemmdarverka með því að aka á eignir og hluti sem á svæðinu voru.
Talið er að ungu mennirnir og þeir sem í hinum bílnum voru hafi orðið fyrir áhrifum frá myndefni á TikTok og fleiri samfélagsmiðlum þar sem má sjá fólk leggja stund á glæfraakstur. Talið er að einn ungu mannanna sem lést hafi áður birt slíkt myndefni
Ap-fréttastofan greinir frá því að bresk stjórnvöld hafi hvatt TikTok og önnur fyrirtæki sem halda úti samfélagsmiðlum eindregið til þess að fjarlægja slíkt myndefni af miðlum sínum. Þar á meðal er Luke Pollard þingmaður Verkamannaflokksins og aðstoðarráðherra í varnarmálaráðuneytinu. Segir hann skilaboðum um þetta hafa verið komið á framfæri við fyrirtækin.
Segir Pollard að samfélagsmiðlafyrirtækin hafi áður sagst geta séð um það sjálf að hafa eftirlit með því að myndefni af þessu tagi fái ekki varanlegan sess á miðlum þeirra og nú sé tækifærið til að sýna það í verki.
Í yfirlýsingu frá skrifstofu Andy Burnham forsætisráðherra Bretlands segir að myndbönd þar sem háskaakstur sé lofaður séu einfaldlega skammarleg. Ríkisstjórnin muni veita eftirlitsstofnunum fullan stuðning við að fá samfélagsmiðlafyrirtækin til að sinna lagalegum skyldum sínum.
TikTok segir það stefnu fyrirtækisins að banna myndefni sem valdi líkamlegum skaða en hefur ekki að öðru leyti tjáð sig.
Samskonar umræður eiga sér stað á Írlandi eftir slys sem varð þar fyrir um viku á M9-hraðbrautinni í Kildare-sýslu. Bíl sem í voru fimm unglingspiltar var ekið á röngum vegarhelmingi framan á bíl sem í var fjögurra manna fjölskylda. Piltarnir létust allir en fjölskyldan slasaðist öll alvarlega. Talið er að piltarnir hafi verið undir áhrifum af myndböndum af fólki aka á röngum vegarhelmingi.
Þingnefnd á írska þinginu bað fulltrúa TikTok um að mæta á fund nefndarinnar og ræða um viðbrögð fyrirtækisins við myndböndum þar sem ólöglegt athæfi er lofsamað. Fyrirtækið hafnaði því hins vegar að mæta.
Fjöldamorðið
Síðasta föstudag réðst 18 ára gamall nemandi í framhaldsskóla í bænum Fagersta í Västmanland-héraði í Svíþjóð með sveðju inn í skólann og varð 17 ára stúlku að bana auk þess að þrír drengir særðust alvarlega.
Sænskir fjölmiðlar hafa fjallað töluvert um árásina og árásarmanninn, Liam Nobel sem var handtekinn á staðnum.
Fram hefur komið í þeirri umfjöllun að Nobel hafi líklega verið undir áhrifum af myndefni á TikTok þar sem ofbeldisverk eru lofsömuð.
Sænska ríkissjónvarpið, SVT, hefur gert ítarlega úttekt á TikTok-reikningi sem talið er mögulegt Nobel hafi mikið skoðað en reikningurinn er hluti af stærra neti á TikTok og víðar í netheimum sem kallað er True Crime Community á ensku en það gengur út á að dýrka fjöldamorðingja og þá sem hafa framið árásir í skólum.
Umræddum reikningi var lokað eftir árásina en þar mátti meðal annars sjá gervigreindarmyndbönd af ofbeldismönnum dansa. Talið er líklegt að reikningurinn hafi verið opnaður á ný undir öðru heiti.
Segir í umfjöllun SVT að eftir árásina hafi árásarmanninum verið hrósað á vettvangi True Crime Community en í einni athugasemd hafi verið gert grín að honum fyrir að ná „aðeins“ að myrða eina manneskju.
TikTok-reikningurinn sem talið er að Nobel hafi verið að skoða er til rannsóknar hjá lögreglu.
Í Svíþjóð er starfandi sérstök miðstöð gegn ofbeldisfullum öfgastefnum og hefur miðstöðin, nú eftir árásina í Fagersta kallað eftir því að TikTok og önnur samfélagsmiðlafyrirtæki geri eitthvað. Helena Josefson sem stýrir miðstöðinni hefur kallað eftir því að fyrirtækin komi til fundar við miðstöðina og geri grein fyrir því hvernig þau ætli að bregðast við myndefni af þessu tagi á miðlum sínum, þar sem ofbeldi er lofsamað og hvatt er til þess. Hefur miðstöðin áður kallað eftir slíkum fundi en fyrirtækin hafa ekki ansað því en hvort þau geri það nú eftir þessa grimmilegu árás og uppljóstranir um áðurnefnt myndefni er enn sem komið er óljóst.