Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari er ósátt við samskipti sín við Icelandair, en hún segist hafa staðið í stappi við að taka fiðluna sína með sér sem handfarangur um borð í vél frá Kaupmannahöfn til Reykjavíkur. Sigrún sem hefur gegnt stöðu 1. konsertmeistara Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá árinu 1998 lýsir atvikinu með eftirfarandi hætti:
„Guð minn góður!!! Starfsfólk flugfélagsins ætlaði nánast ekki að leyfa mér að taka fiðluna mína með um borð í Icelandair-vél frá Kaupmannahöfn til Reykjavíkur. Ég var við það að missa stjórn á skapi mínu en náði mér svo niður og ætlaði bara að halda áfram, en konan kallaði á eftir mér: „Frú, þér verður þá vísað út úr vélinni,“ eins og ég væri glæpamaður! Hún sagði mér að víkja til hliðar og bíða eftir að fólk tæki fiðluna og færi með hana niður í farangursrými. Ég útskýrði málið fyrir þeim og sagði að það kæmi alls ekki til greina að hún færi niður í lestina. Hún sagði mér samt að bíða og víkja til hliðar. Ég spurði þá hina konuna hvort þær hefðu aldrei áður fengið fiðluleikara um borð, en hún sagði að yfirmaður hennar réði þessu!“
Sigrún segist hafa haldið áfram í átt að vélinni og verið staðráðin í að reyna að tala við flugmanninn eða flugfreyjurnar. Önnur konan hafi farið á eftir henni. Segist hún sagt flugfreyjunum að hún væri með fiðlu sem starfsfólk væri að reyna að taka af henni.
„Þær sögðust myndu hjálpa mér, en konan spurði þær hvort þetta væri í lagi eins og ég væri óþekkt barn!!! Þessu verður að linna!!!!“
Segist Sigrún ekki hafa vitað hvort hún yrði handtekin þegar hún ákvað að hunsa fyrirmælin og ganga í átt að vélinni. „Þetta var niðurlægjandi og tók mjög á.“
Segist hún ekki skilja hvers vegna flugfélög „beina sjónum sínum að klassískum tónlistarmönnum sem hafa aldrei komist í kast við lögin, ferðast með dýrmæt og viðkvæm hljóðfæri og hafa tónlistarflutning að atvinnu.“
Segist Sigrún hafa flogið með Icelandair í 49 ár og það hafi aldrei áður verið vandamál að taka fiðluna um borð sem handfarangur. Segir hún að um danska starfsmenn hafi verið að ræða á Kastrup-flugvelli. „Þeir verða að hafa starfsmenn á flugvellinum í Kaupmannahöfn sem hafa skilning á hljóðfærum.“
Í athugasemdum við færslu Sigrúnar lýsa nokkrir því hvernig þeir hafi einnig þurft að standa í stappi við að taka viðkvæm hljóðfæri sín með í handfarangri. Segir einn að flugmaður vélarinnar hafi alltaf ákvörðunarvaldið um hvað farþegi megi taka í handfarangur.
Í skilmálum Icelandair um handfarangur segir í grein 8.7 að hann verður að komast fyrir undir sætinu fyrir framan farþegann eða í lokuðu geymsluhólfi í farþegarými flugvélarinnar.
Sigrún segir kassa fiðlunnar flatan og nettan í athugasemd við færslu sína.
Í grein 8.7.2 segir síðan: Hlutir sem ekki henta til flutnings í farmrými (svo sem viðkvæm hljóðfæri og þess háttar) og sem uppfylla ekki kröfurnar í grein 8.7.1 hér að framan verða aðeins samþykktir til flutnings í farþegarými ef farþegi hefur tilkynnt um slíkt fyrirfram og leyfi hefur verið veitt af hálfu flugrekanda. Farþeginn gæti þurft að greiða sérstakt gjald fyrir þessa þjónustu.