Fréttir

Simmi Vill kom með hugmynd fyrir Ragnar Þór í beinni: „Pældu í því hvað það væri kúl“

Mynd
Ragnar Þór Ingólfsson og Sigmar Vilhjálmsson. Samsett mynd.

Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðisráðherra segir að mál tvíburaforeldra sem eiga ekki rétt á greiðslum í fæðingarorlofi sé til skoðunar í ráðuneytinu. Nýverið var fjallað um mál Friðriks Rúnars Friðrikssonar og Ronju Rán Palladóttur sem eignuðust tvíburadætur eftir bráðakeisarauppskurð og uppgötvuðu á vökudeild að þau fengju ekki fæðingarorlof vegna ósveigjanleika í kerfinu. Í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun sagði Ragnar Þór að verið sé að fylgjast með umræðunni en líkt og fjallað var um í gær hefur fæðingarorlofssjóður, sem heyrir undir Vinnumálastofnun, verið gagnrýndur fyrir slæmt viðmót.

Sjá frétt: Von hefur vaknað hjá tvíburaforeldrum sem synjað var um fæðingarorlof

Sjá frétt: Andrea skilin eftir með óbragð í munni eftir samskipti við fúlan starfsmann

„Við höfum fylgst með umræðunni og þeirri gagnrýni sem hefur verið á fæðingarorlofssjóð, bæði út af þeim afdráttarlausu reglum sem sjóðurinn þarf að fylgja samkvæmt lögum og líka gagnrýni á viðmót og þjónustu. Það er gagnrýni sem við tökum alvarlega,“ sagði Ragnar Þór. 

Starfsmenn horfi til laga og reglna

Í Morgunblaðinu í dag er rætt við Leó Örn Þorleifsson, sviðsstjóra réttindasviðs stofnunarinnar en hann segir að meginþorri foreldra renni beint í gegn og klári sín mál á örskotsstundu. Tók hann upp hanskann fyrir starfsfólki Fæðingarorlofssjóðs: „Þetta er ekki gert til þess að tefja fyrir, þetta er ekki gert til þess að standa í vegi fyrir réttindum fólks. Þetta er gert til þess að rannsaka aðstæður svo unnt sé að taka ákvörðun um þeirra réttindi, svo þau fái rétt réttindi,“ sagði Leó.

Ragnar Þór segir að kerfin séu almennt klippt og skorin þegar kemur að réttindum í kerfinu. Gerðar hafi verið ýmsar breytingar í tíð ríkisstjórnarinnar, þar á meðal að tryggja foreldrum sem veikjast á meðgöngu aukinn rétt og aukinn rétt foreldra til sorgarleyfis. 

„Ég held að almennt séð séu þeir sem starfa í ríkisstofnunum horfa meira til þeirra regla og þeirra laga sem þeirra stofnanir og starfsmenn vinna undir,“ segir Ragnar Þór. 

Fer í hugmyndabankann

Sigmar Vilhjálmsson, Simmi Vill, þáttastjórnandi greip orðið og lagði til nýstárlega breytingu á núverandi kerfi:

„Þetta eru ellefu börn á dag. Það er hægt að taka upp símann og hringja í hvert einasta foreldri og óska þeim til hamingju og fara yfir reglurnar með þeim. Ef þetta einkageirinn og ég er bara, þetta eru sirka ellefu viðskiptavinir á dag, ég ætla að taka bara vel utan um þá og hringja í hvert einasta foreldri, fara yfir reglurnar og taka hvert mál fyrir sig. Þetta eru ellefu börn á dag. Tökum bara vinnudag, þú ert með starfsmenn á skrifstofu, þú getur nánast farið yfir hvert einasta keis og persónugert það fyrir hvert einasta barn. Þetta er ekki stærra en það,“ sagði Sigmar.

„Við í þessu litla landi höfum náð að búa til eitthvað kerfi, stofnanir, skiptiboð og einhverjar boðleiðir. Þetta eru ellefu börn á dag. Við getum hringt í þetta fólk persónulega. Í alvöru talað, hvað þarf að ráða marga starfsmenn til að hringja í alla foreldra og hætta að vera með eitthvað svona kerfislegar lausnir til að fjarlægja okkur frá hverjum og einum einstakling. Mér finnst þið oft gleyma því, við erum fámenn og við getum tekið þjónustuna upp á persónulegt level. Við erum með ljósmæður sem sinna frábæru starfi og svo er farið inn í eitthvað kerfi með einhverri skrifstofu í miðbæ Reykjavíkur.“

Ragnar Þór svaraði: „Eigum við ekki bara að segja það að þetta fari inn í hugmyndabankann.“

Sigmar lagði til að ráðherrann gæti gert þetta sjálfur:

„Þú gætir hringt í hverja einustu fjölskyldu. Pældu í því hvað það væri kúl ef þú myndir hringja sem ráðherra og óska til hamingju. Þetta eru ellefu símtöl. Þrjár mínútur hvert símtal. Þú verður búinn að þessu fyrir tíu.“