„Nú eru nánast 100% líkur á að forsendur kjarasamninganna bresti. Verðbólgan hækkar úr 5,2% í 5,3% og nú er einungis ágústmælingin eftir. Þá má 12 mánaða verðbólga ekki vera hærri en 4,7% samkvæmt forsendum samninganna,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og Verkalýðsfélags Akraness í færslu á Facebook. Hann er ómyrkur í máli:
„Það verður því æ ljósara að íslenskt verkafólk var svikið.“
Hann segir að verkafólk hafi sýnt mikla ábyrgð í kjarasamningunum 2024 til að skapa skilyrði fyrir lækkun verðbólgu og vaxta.
„Ábyrgð stjórnvalda er gríðarleg vegna skattahækkana og aukinna álaga. Sveitarfélög hafa hækkað gjaldskrár og fyrirtæki innan Samtaka atvinnulífsins hafa í sumum tilfellum hækkað verðlag eins og enginn sé morgundagurinn – þrátt fyrir fyrirheit um að allir myndu leggja sitt af mörkum,“ segir hann.
„Verkafólk stóð við sitt. Allt of margir aðrir gerðu það ekki.“
Hann segir sorglegt að stjórnvöld, stjórnmálamenn og þjóðin verði upptekin af þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður við Evrópusambandið. „Á meðan virðist enginn ætla að lyfta „sleggjunni“ frægu sem átti að berja niður verðbólgu og vexti,“ segir hann.
„Við þurfum sjálf að ná tökum á okkar efnahagsvanda – sama hvaða gjaldmiðil við notum. Þess vegna er dapurlegt ef ESB-umræðan verður nú látin yfirskyggja það neyðarástand sem er að skapast vegna brostinna forsenda kjarasamninganna, áframhaldandi verðbólgu og vaxta sem eru að sliga heimili og fyrirtæki.“
Hagfræðingurinn Konráð Guðjónsson telur einnig að forsendur kjarasamninga séu að bresta, gerir hann það í mjög stuttu máli á X:
Forsenduákvæði kjarasamninga pic.twitter.com/Z7mrWYsffM
— Konráð S. Guðjónsson (@konradgudjons) July 23, 2026