Pressan

Lögreglan búin að fá nóg af samkomu fornbílaeigenda - Nauðganir, ofbeldi, dóp og drykkja

Mynd
Sænskir lögreglumenn við störf. Mynd:Getty

Í síðustu viku var sérstök fornbílavika í smábænum Rättvik í héraðinu Dalarna í Svíþjóð en í bænum búa um 5.000 manns. Það væri líklega vart í frásögur færandi ef væri ekki fyrir það að lögreglan í héraðinu sá ástæðu til að lýsa yfir sérstakri óánægju með viðburðinn. Lögreglan segir hann einkennast af líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi, fíkniefnaneyslu, drykkju og öðru óæskilegu athæfi og nú sé svo komið að velta verði því alvarlega upp hvort ástæða sé til að leyfa samkomuna, í óbreyttri mynd, að ári.

Aftonbladet greinir frá þessu. Ekki kemur fram hversu langa sögu fornbílavikan á sér í bænum en þetta sé ekki í fyrsta sinn sem að vandamál af þessu tagi fylgi viðburðinum.

Segir lögreglan í héraðinu raunar að ekkert nema þjáningar hafi fylgt fornbílavikunni:

„Við viljum ekki þurfa að fara með fleiri ungar konur, sem hefur verið nauðgað, á spítala.“

Lögreglan segir að þegar bjart sé þá ami ekkert að. Bílarnir séu í aðalhlutverki og fólk komi saman til að sjá þá og njóta viðburðarins en eftir að myrkur skelli á verði fjandinn laus.

Ofbeldi, drykkja og mikill hávaði taki þá við. Alls hafi 900 sektir verið gefnar út á fornbílavikunni í ár þar af 230 fyrir að leika hávaðasama tónlist í bílunum. Alls hafi verið tilkynnt um 30 líkamsárásir, fimm nauðganir og þó nokkur fíkniefnamál hafi komið upp.

Ekki

Zandra Runo starfandi lögreglustjóri í Dalarna segir við Aftonbladet að á svona samkomu eigi nauðganir ekki að geta átt sér stað.

Hún segir drykkjuna á fornbílavikunni mikla og að í ár eins og fyrri ár hafi verið sérstaklega mikið um að lögreglan hafi þurft að hafa afskipti af börnum og ungmennum, þau yngstu hafi verið 12 ára. Svona umhverfi sé alls ekki gott fyrir þennan aldurshóp.

Alls hafi lögreglan neyðst til að setja 71 barn í sína gæslu og upp hafi komið 2.900 tilfelli þar sem áfengi var tekið af börnum og ungmennum.

Hún hefur sérstakar áhyggjur af því að við þær aðstæður sem uppi hafi verið á fornbílavikunni þá verði börn og ungmenni útsett fyrir áföllum sem geti markað þau fyrir lífstíð.

Runo segir að svona hafi þetta verið með fornbílavikuna árum saman. Lögreglan auki viðbúnað sinn en ástandið lagist ekkert. Haft verði samráð við skipuleggjendur fornbílavikunnar og sveitarfélagið um hvort að það sé yfirhöfuð hægt að halda viðburðinn aftur í óbreyttri mynd.