Pressan

Dularfullu risastóru sporin – Var um sæskrímsli að ræða?

Mynd
Hrekkjalómur með gervifætur
Tony Signorini með risafæturna.

Í tíu ár, frá 1948 til 1958, birtust reglulega risastór fótspor, með þremur tám, á ströndinni í Clearwater í Flórída. Svo var að sjá sem risastór vera hefði komið upp úr sjónum um nóttina.

Sporin vöktu mikla athygli og lögreglan rannsakaði málið og það gerðu vísindamenn einnig. Breski líffræðingurinn Ivan T. Sanderson rannsakaði málið ítarlega og komst að þeirri niðurstöðu að sporin væru eftir forsögulega risamörgæs sem hefði verið 4,5 metrar á hæð.

En hann hafði nú heldur betur rangt fyrir sér því skýringin á fótsporunum var miklu jarðbundnari en það kom ekki í ljós fyrr en 1988. Þá steig Tony Signorini fram og viðurkenndi að hann og vinur hans hefðu staðið á bak við þetta. Þeir höfðu steypt risastóra járnfætur, sem vógu 13 kg stykkið, sett á fætur sér og öðru hvoru farið í næturgöngu á ströndinni.

Sonur Signorini sýndi síðar upprunalegu „mörgæsaskóna“ opinberlega.

Mynd
Feðgar með gervifætur