Fréttir

Landsliðsmaður í handbolta kallar eftir samningi um inngöngu Íslands í Bandaríkin

Mynd
Viggó Kristjánsson. Mynd: Max Petershans / CC BY-SA 4.0 (Wikimedia Commons)

Viggó Kristjánsson landsliðsmaður Íslands í handbolta hefur kallað eftir því að Donald Trump forseti Bandaríkjanna bjóði Íslandi samning um að verða hluti af ríki sínu.

Viggó var í landsliðshópnum á síðasta stórmóti, Evrópukeppninni í janúar síðastliðnum.

Hann skrifar færslu á X á ensku og merkir X-reikning Trump í færslunni. Landsliðsmaðurinn skrifar ( í þýðingu DV): 

„Þar sem Ísland er að hugleiða að ganga í Evrópusambandið þá viljum við líka skoða að verða 51. ríki Bandaríkjanna. Gætum við fengið að sjá drög að aðildarsamningi? Áfram Ísland.“

Líklega er Viggó að meina þetta í kaldhæðni. Síðustu tvö orðin ritar hann á íslensku og mögulega bendir það til að hann sé að lýsa yfir stuðningi við samtökin Áfram Ísland sem berjast fyrir því að nei verði ofan á í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst um framhald aðildarviðræðna Íslands og ESB. 

Hvort Viggó sé með færslu sinni að gefa í skyn að innganga í Evrópusambandið sé sambærileg inngöngu í Bandaríkin er erfitt að segja. Ríki Bandaríkjanna hafa vissa sjálfsstjórn og eru öll með eigið framkvæmdavald, dómsvald og löggjafarvald en þeim eru þó takmörk sett. Ríki Bandaríkjanna eru heldur ekki sjálfstæð fullvalda ríki og eiga til að mynda ekki hvert og eitt aðild að Sameinuðu þjóðunum heldur landið sem heild.

Aðildarríki Evrópusambandsins deila fullveldi sínu en teljast þó vera sjálfstæð og fullvalda ríki. Til að mynda eiga þau hvert og eitt aðild að Sameinuðu þjóðunun en ekki Sambandið sem heild. 

Viggó Kristjánsson hefur haft atvinnu af því að spila handbolta frá 2016 í alls þremur löndum. Danmörku, Austurríki og nú Þýskalandi. Hvort hann telur sig allan þennan tíma hafa búið og starfað í löndum sem eru ekki sjálfstæð og fullvalda er erfitt að ráða af færslu hans.