Yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu er hvorki tilbúinn til að staðfesta né hafna því að manndráp hafi verið framið á Kársnesi í Kópavogi fyrr í dag.
Þetta kom fram í samtali DV við Elínu Agnesi Eide sem segir lögreglu ekki hafa staðfest manndráp. Hún segir:
„Það er einhver frétt þarna á RÚV.“
Aðspurð hvort sú frétt sé ekki rétt þá segir hún:
„Ég er bara að fara að hitta mitt fólk og tek símann á eftir.“