Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, kynjafræðingur og baráttukona fyrir réttindum trans fólks, segir að hinsegin fólk spyrji sig hvort það sé tímaspursmál að eitthvað voðaverk eigi sér stað á Íslandi líkt og í Berlín um helgina.
Minnst einn lést og 29 slösuðust þegar maður ók bíl inn í hóp af fólki sem var að fagna hinsegin dögum í Berlín í Þýskalandi á laugardagskvöldið. Samkvæmt BBC er atvikinu lýst sem „íslömsku hryðjuverki“. Sá sem er grunaður um árásina, hinn 21 árs gamli Abdul Ballout, var skotinn til bana af lögreglu.
Ugla Stefanía bendir á í færslu á Facebook að margir hér á landi hafi sett hláturskalla við fréttir af þessum atburði og jafnvel haldið því fram að fórnarlömbin hafi átt þetta skilið.
„Þar er líka fólk sem bókstaflega fagnar þessu. Meðal þeirra eru Íslendingar sem koma fram undir fullu nafni. Fólk sem lætur sjá sig við allar fréttir og færslur um hinsegin fólk til að láta hatur sitt í ljós,“ segir Ugla Stefanía.
„Það er því ekki skrítið að hinsegin fólk spyrji sig hvort það sé tímaspursmál þangað til svona gerist hér á Íslandi. Þangað til öfgavæðingin og radíkalíseringin geri það að verkum að einhver verði nógu sjúkur til að láta til skarar skríða.“
Hún segir að það sé ekki að undra að hins hinsegin fólk og fjölskyldur þeirra sé uggandi og hrædd yfir ástandinu.
„Þær umræður sem hafa myndast undanfarin misseri um hvort það séu bara tvö kyn, hvers vegna regnbogafáninn sé mikilvægur og skemmdarverkið hjá Grafarvogskirkju eru hluti af þessu mengi. Þess vegna er fólk reitt, úrvinda og hrætt,“ segir hún.
„Hinsegin dagar eru handan við hornið og langar mig að hvetja ykkur öll til að hugsa hvert við erum að stefna sem samfélag. Vegna þess að ef við kveðum ekki niður þá fordóma og það bakslag sem hefur blossað upp hérlendis þá erum við að stefna rakleiðis á þann stað að þurfa að horfa upp á alvarlega hatursglæpi og voðaverk raungerast.“
Telur þróunina ekki afleiðingu hægri sveiflu
Fleiri hafa lagt orð í belg vegna árásarinnar, þar á meðal Einar Jóhannes Guðnason, oddviti Miðflokksins í Kópavogi:
„Það er sannarlega bakslag í Evrópu. Bakslag í öryggi almennings. Á Íslandi eru foreldrar að verða tregari til að leyfa börnum sínum að leika úti án eftirlits, konur veigra sér við leigubílaferðir og víða um Evrópu er beinlínis orðið hættulegt sækja jólamarkaði, tónleika eða gleðigöngur. Þessi þróun er ekki afleiðing „hægri sveiflu“. Hún er þvert á móti afleiðing þess að sjónarmið á borð við stefnu Miðflokksins hafa of lengi ekki fengið hljómgrunn eða framgang í Evrópu,“ segir hann.
„Fjölmiðlar, aktivistar og vinstri-popúlistar hafa séð til þess. Hryðjuverkaárásin í Berlín er skelfileg áminning um hvert þróunin getur leitt. Þetta er hræðilegt, á ekki heima í Evrópu og verðum við að sporna við þessari þróun. Tími heilbrigðrar skynsemi er núna og verðum við að geta átt hreinskilið samtal um rót vandans. Þar munar um Miðflokkinn.“
Ekki hægt að kenna þjóðum eða menningu um voðaverk
Í umræðum við færslu Uglu hafa nokkrir rætt um íslamskan vinkil árásarinnar. Björn Leví Gunnarsson, fyrrum þingmaður Pírata, hafnar því að hægt sé að kenna þjóðum eða menningu um voðaverk sem þessi.
„Þú dæmir ekki Norðmenn út frá Útey, sem dæmi? Eða Þjóðverja út frá Hitler, Ítali út frá Mussolini eða Spánverja út frá Franco. Og svo framvegis. Vissulega fengu þeir ansi marga til þess að fremja hroðaleg verk fyrir sig - en við kennum ekki heilli þjóð eða menningu um það. Hversu málefnalegt sem það er að kenna Bretum um heimsvaldsstefnuna þá er ekki hægt að benda á einstaka Breta og segja hann vilja gera það sama,“ segir Björn Leví.
„Á sama tíma hunsum við auðvitað ekki slík verk. Því þau er að finna meðal allra manna. Óháð "menningarsvæðum". Við berjumst gegn slíkum verkum og hverjum sem þau fremja. En ekki á forsendum uppruna þeirra - með því að kenna öllum sem líta eins út eða fæddust í nágreni við - heldur á forsendum skoðana þeirra. Ofbeldi er ömurð sem á að útiloka, sama hvaðan það kemur.“