Fréttir

Kári svarar Jóni Steinari fullum hálsi: „Svo leyfir þú þér að „saka“ mig, jafnaldra þinn um elliglöp“

Mynd
Jón Steinar Gunnlaugsson og Kári Stefánsson. Samsett mynd.

Kári Stefánsson, fyrrverandi forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir að það hljóti að vera elliglöp hjá Jóni Steinari Gunnlaugssyni, fyrrverandi hæstaréttardómara, að rekja forræðishyggju sína til sósíalisma. 

Jón Steinar fór mikinn í gagnrýni sinni á Kára í færslu á Facebook vegna skrifa þess síðarnefnda um sölu áfengis en Kári er alfarið á móti því að einkaaðilar sinni sölu áfengis og hefur kallað eftir því að tekið verið á málunum. 

Sjá frétt: Jón Steinar hjólar í Kára

Gott fyrir samfélagið að hann haldi skýrleika

Kári hefur nú svarað Jóni Steinari fullum hálsi. „Það er af sem áður var og veldur það mér töluverðum kvíða að þú skulir nú ekki geta haldið hugsun í gegnum tvær litlar málsgreinar. Ég er nefnilega á þeirri skoðun að það hefði verið gott fyrir íslenskt samfélag að þú héldir skýrleika í þinni gagnrýnu hugsun,“ segir Kári. 

Þá fer hann yfir skrif Jóns Steinar: „Í fyrri málsgrein þinni segist þú fallast á þá afstöðu að dómsmálaráðherra beri að fara að lögum. Það var ekki við öðru að búast af fyrirverandi hæstaréttardómara. Í seinni málsgreininni segir þú að dómsmálaráðherra ætti „að fella úr gildi allar hömlur á sölu þessarar neysluvöru.“ Það eru litlar líkur á því að fyrirverandi hæstaréttardómari myndi segja þetta nema hann væri byrjaður að glata því sem guð gaf honum,“ segir Kári.  Hömlurnar séu settar með lögum og það sé í höndum Alþingis en ekki ríkisstjórnar að fella lög úr gildi. 

„Að þessum mistökum þínum slepptum fjallaði seinni málsgreinin þín um forræðishyggju mína sem þú segir eiga rætur í sósíalisma. Það er ekki hægt að mótmæla því að öll boð og bönn sem lúta að sölu áfengis eins og öll boð og bönn sem lúta að sölu annarra fíkniefna eiga rætur í forræðishyggju.“

Hvergi meiri forræðishyggja en í Bandaríkjunum

Rifjar Kári upp skrif Jóns Steinars um að lögleiða fíkniefni. 

„Einn af kostum þess sagðirðu væri sá að þar með yrði þetta fyrir opnum tjöldum og væri þess vegna auðveldar að fylgjast með og takast á við. Mjög athyglisverð nálgun þegar horft er til þess að fíkniefnanotkun er stöðugt að vaxa þrátt fyrir lög sem banna hana. Sterkustu mótrökin eru þau að fyrir töluverðan hundraðshluta fólks hefur neysla fíkniefna og þar með talin áfengis ekkert með vilja að gera,“ segir Kári. 

„Þess vegna höllumst við enn að boðum og bönnum og meðan samfélagið er ekki reiðubúið til þess að breyta um kúrs verðum við að nýta það besta sem þessi nálgun hefur upp á að bjóða.“ 

Þá nefnir Kári elliglöp:

„Að lokum Jón þegar þú skrifar forræðishyggju mína á sósíalisma eru þér aftur að verða á mistök sem ég held að hljóti að eigar rætur í elliglöpum. Hvergi í heiminum er forræðishyggju í fíkniefnamálum beitt af eins mikilli hörku og í Bandaríkjunum og mér skilst að sósíalismi hafi átt erfitt uppdráttar í því plássi.“

Ekki lúta boðum og bönnum

Jón Steinvar svarar honum til baka og er ekki sáttur við ummælin um elliglöp. „Hömlur eru settar með lögum. Þess vegna á að fella þær úr gildi með lögum. Dómsmálaráðherra ætti að beita sér fyrir því að Alþingi samþykki frumvarp um þetta. Svo leyfir þú þér að „saka“ mig, jafnaldra þinn um elliglöp,“ segir Jón Steinar. 

„Málið snýst um það hvort við viljum lifa í samfélagi þar sem borgarar ráða gjörðum sínir sjálfir en ekki menn sem telja sig þess umkomna að segja öðrum hvað þeir mega gera og hvað ekki. Svo er þar að auki ljóst að eina haldbæra ráðið fyrir til að ná tökum á fíkninni er að fást við sjálfan sig en ekki lúta boðum og bönnum eins og þú krefst.“

Finnur til samúðar með fólki eins og Kára

Þá beinir Jón Steinar spjótum sínum að Kára sjálfum:

„Ég hélt að þú værir frjálshuga maður sem teldi sig ekki geta stjórnað öðrum með fáfengilegri forsjárhyggju,“ segir Jón Steinar. Hann ætli sér ekki að fjalla um reglur um fíkniefni.

„Segi bara að þú ert sýnilega einn þeirra manna sem vilja fóðra glæpamennina sem selja fíkniefni neðanjarðar, þar sem þeir beita ofbeldi og jafnvel manndrápum. Væri ekki betra ráð að bjóða þeim sem ánetjast slíkum efnum læknismeðferð, eins og við reynum að gera við þá sem ánetjast áfenginu?,“ spyr hann. 

„Ég finn til samúðar með fólki eins og þér sem vill stjórna „lýðnum“ með misbeitingu ríkisvalds. Það hefur verið gert um víðan heim með hörmulegum afleiðingum, eins og jafnvel sósíalistar ættu að þekkja.“