The Wall Street Journal skýrir frá þessu og segir að helstu ástæður skotfæraskortsins séu að framleiðslugetan sé ekki næg, það vanti sérhæft vinnuafl, það skorti fjármögnun og ýmis efni til framleiðslunnar.
Nico Lange, sem var áður einn af æðstu embættismönnunum í þýska varnarmálaráðuneytinu, sagði í samtali við blaðið að Þjóðverjar hafi neyðst til að bæta við framleiðslu á vopnum og skotfærum vegna stríðsins. Hann sagði að NATO-ríkin séu undir svo miklu álagi vegna stríðsins að þau eigi ekki nægilega mikið af skotfærum til að geta varið landsvæði sitt gegn öflugum óvinum á borð við Rússland.
„Ríkisstjórnir hafa skorið fjárframlög niður áratugum saman og það hefur orðið til þess að skotfæraframleiðendur hafa dregið úr framleiðslu og fækkað starfsfólki,“ sagði hann.
Ein af ástæðunum fyrir hinum mikla skotfæraskorti er hvernig Evrópuríki hafa byggt heri sína upp. Í staðinn fyrir að einblína á stríð í hefðbundnum skilningi og undirbúa sig undir stríð í líkingu við það sem var í síðari heimsstyrjöldinni hafa þau byggt heri sína upp til að takast á við litla hópa óvina sem bæta skæruliðaaðferðum í hernaði sínum.
Miklar fjárfestingar eiga sér nú stað í hergagnaiðnaði víða í Evrópu þessa mánuðina til að hægt sé að auka framleiðslugetuna. Það er greinilega full þörf á því miðað við það sem þýsk yfirvöld segja en þau segja að ef Rússar myndu ráðast á Þýskaland núna þá eigi þýski herinn aðeins skotfæri til að verjast í tvo daga.