Kolbrún segir borgina vera leiðtogalausa eftir brotthvarf Dags – Segir að hann eigi meira skilið frá Kristrúnu
FréttirKolbrún Bergþórsdóttir, fjölmiðlakona og fyrrverandi ritstjóri, segir að Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri, sé einn af yfirburðarmanneskjum íslenskra stjórnmála. Kolbrún gerði meðal annars stöðuna í borgarmálunum að umtalsefni í pistli sínum í sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. Eins og kunnugt er sleit Einar Þorsteinsson borgarstjóri meirihlutanum fyrir skemmstu og standa viðræður nú yfir um myndun nýs Lesa meira
Kolbrún ómyrk í máli: „Menn misstu æruna að tilefnislausu en samt þykir best að tala sem minnst um málið“
Fréttir„Þjóðfélag sem samþykkir að dæma saklausan mann sekan er alltaf á skelfilega ómanneskjulegum villigötum,“ segir Kolbrún Bergþórsdóttir, fjölmiðlakona og fyrrverandi ritstjóri, í pistli sem vakið hefur talsverða athygli í sunnudagsblaði Morgunblaðsins. Þar gerir Kolbrún MeToo-byltinguna svokölluðu að umtalsefni og segir að dómstól götunnar hafi verið leyft að ganga lausum. Nefnir hún til dæmis mál Vítalíu Lazareva sem sakaði nokkra Lesa meira
Kolbrún kvíðir sumrinu: Íþróttirnar taka yfir í sjónvarpinu – „Mikil þjáning bíður manns“
FréttirKolbrún Bergþórsdóttir, hin þrautreynda fjölmiðlakona, er ekki stærsti íþróttaáhugamaður landsins. Hún gerir íþróttir í sjónvarpi að umtalsefni í pistli í Morgunblaðinu í dag og rifjar upp landsleik Íslands og Austurríkis í knattspyrnu kvenna í sjónvarpi allra landsmanna síðastliðinn þriðjudag. „Enn einu sinni gerðist það, nú á þriðjudagskvöldi á besta sjónvarpstíma, að sýnt var beint frá Lesa meira
Steinunn Ólína segist ekki vera að leggja Katrínu í einelti
EyjanSteinunn Ólína Þorsteinsdóttir forsetaframbjóðandi vísar því alfarið á bug að hún sé að leggja Katrínu Jakobsdóttur mótframbjóðanda sinn of fyrrverandi forsætisráðherra í einelti. Steinunn Ólína segist aðeins hafa viðhaft eðlilega gagnrýni á störf Katrínar. Þegar Steinunn Ólína var að hugleiða hvort hún byði sig fram gaf hún það hins vegar skýrt til kynna að hún Lesa meira
Kolbrún segir að við höfum ekkert við hávaðafólk að gera sem afneitar vísindum
FréttirVið megum ekki ganga út frá því að yfirvöld landsins séu óskeikul og það er mikilvægt að spyrja krefjandi spurning um sóttvarnaaðgerðir sem hafa takmarkað mannréttindi fólks og stefnt atvinnu- og fjárhagsöryggi of margra í hættu. Ekki má heldur gleyma kvíða og þunglyndi sem grípur um sig meðal þeirra sem ekki eru mjög harðir af sér. Ástandið Lesa meira
Kolbrún segir að stjórnarandstaðan sé ekki burðug og geti ekki gengið í takt
EyjanÞað er engin ástæða til að nöldra yfir áframhaldandi samstarfi Framsóknarflokksins, Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna í ríkisstjórn undir forsæti hins framúrskarandi forsætisráðherra Katrínar Jakobsdóttur. Þetta segir Kolbrún Bergþórsdóttir í leiðara Fréttablaðsins í dag. Hún segir stjórnarandstöðuna vera lítt burðuga og líklega muni stjórnarflokkarnir eiga auðvelt með að kveða hana í kútinn. Hún segir að flokkarnir, sem eru Lesa meira
Kolbrún segir viðvaranir Eiríks um fasisma ríma nánast hrollvekjandi við samtímann
EyjanNýlega kom Ómíkron afbrigði kórónuveirunnar fram á sjónarsviðið og hafa stjórnvöld víða um heim gripið til þess ráðs að herða sóttvarnaaðgerðir vegna þess. Þessar aðgerðir og annað tengt heimsfaraldri kórónuveirunnar er umfjöllunarefni Kolbrúnar Bergþórsdóttur í leiðara Fréttablaðsins í dag en hann ber fyrirsögnin „Rétta lausnin“. „Hinn ríki vilji taugabilaðra stjórnvalda til að takmarka frelsi þegnanna fer stigvaxandi Lesa meira
Kolbrún segir að ekki eigi að setja fólk í fjötra vegna stöðunnar á Landspítalanum
FréttirMeð því að einblína á smittölur er verið að senda fólki skilaboð um að bólusetningar skipti sáralitlu máli en það er vitanlega ekki rétt. Það er því lítið vit í að telja Covid-smit af sama ákafa og gert var áður en stór hluti þjóðarinnar var bólusettur. Þetta segir Kolbrún Bergþórsdóttir í ritstjórnargrein í Fréttablaðinu í dag. Lesa meira
Kolbrún segir Víði hafa sýnt fólki lítilsvirðingu
FréttirVegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar hafa ákveðnar takmarkanir verið settar á mannréttindi fólks um langa hríð. Það er hættulegt að taka þessum takmörkunum sem sjálfsögðum hlut. Ástandið er óeðlilegt og fólk verður að muna það og ekki sætta sig þegjandi við ástandið og hætta að spyrja um nauðsyn og tilgang þeirra hafta sem hafa verið sett á. Lesa meira
„Smásálarhroðinn“ Páll á að halda starfi sínu segir Kolbrún
EyjanÞað fór varla framhjá mörgum á dögunum þegar Páll Vilhjálmsson, kennari og bloggari, skrifaði pistil um Helga Seljan, fréttamann hjá RÚV, og andleg veikindi hans og innlögn á geðdeild. Mátti skilja skrif Páls svo að hann telji að þar sem Helgi hefði glímt við andleg veikindi þá væri hann ófær um að sinna starfi rannsóknarblaðamanns og hugsanlega hvaða Lesa meira