Eyjan

Kolbrún Bergþórsdóttir: Hlaupið í fang Trumps

Mynd
Mynd

Sky fréttastofan var fyrir rúmri viku með beina útsendingu frá ræðu Donald Trumps Bandaríkjaforseta á árlegum hátíðakvöldverði með fréttamönnum. 

Ruglingsleg ræða Trumps stóð yfir í rúman klukkutíma. Fjölmiðlamönnunum fór fljótlega að leiðast, einhverjir fóru að skoða símann sinn, aðrir urðu áberandi sljólegir, eins og gerist þegar menn eru í þreytandi aðstæðum sem þeir vita að þeir geta ekki losnað undan. Svo byrjaði forsetinn að byrsta sig, nefna nöfn og benda á þá sem hann sagði vera ömurlega falsfréttamenn og nefndi sérstaklega fréttakonu CNN sem hann líkti við þekkta transkonu. Hann sagði hana aldrei brosa og bætti við að hún ætti að brosa því hún ynni á falsfréttamiðli. 

Sýndar voru myndir úr salnum. Furðulostin eiginkona sást horfa á eiginmann sinn og sá setti upp pókerandlit. Fjölmiðlamaður gjóaði augum að kollega sínum sem bar hönd upp að andliti sínu. Flestir viðstaddra biðu eftir að þeir kæmust heim, burt frá þessari misheppnuðu samkomu. 

Eins og við var að búast var klapplið forsetans í salnum. Í þeim hópi reyndu menn að hífa upp stemningu með klöppum sem voru ansi máttleysisleg. Ekkert var þess megnugt að breiða yfir vonlausa frammistöðu Bandaríkjaforseta.

Donald Trump á sitt klapplið hér á Íslandi eins og annars staðar. Því fólki finnst engu skipta þótt gjörðir hans sé margar hverjar skelfilegar og orð hans iðulega marklaus. Einn daginn segist hann vera búinn að ná friðarsamningum í duttlungafullu stríði sínu við Íran, daginn eftir segist hann ætla að sprengja Íran til helvítis. Hann segir öllum fyrir bestu að hann eignist Grænland. Klapplið hans ypptir öxlum yfir því að tugir kvenna hafa í gegnum áratugina sakað hann um kynferðislega áreitni. Hann skellir ofurtollum á þjóðir vegna þess að illa liggur á honum þann daginn. Hann beitir sér gegn umhverfisvernd. Hann vinnur gegn mannréttindum sem mest hann má. Hann reynir að veikja NATO á allan mögulegan hátt en sækist um leið eftir því að leiðtogar Evrópu smjaðri fyrir honum – sem þeir hafa óneitanlega verið duglegir að gera. 

Þrátt fyrir allt þetta, og meira til sem ekki er pláss til að tína til hér, þá finnast stjórnmálamenn hér á landi sem segja nauðsynlegt að Ísland halli sér í ríkara mæli að Bandaríkjunum og víki af braut Evrópusamvinnu. Þeir vilja hlaupa í fangið á Trump.

Undanfarið höfum við orðið vitni að nær tryllingslegum ótta andstæðinga  Evrópusambandsins við að Ísland gangi í sambandið. Óneitanlega finnst manni þessi ótti full snemma á ferðinni því Íslendingar eru ekki að fara að kjósa um það 29. ágúst hvort þeir gangi í Evrópusambandið. Það er þó einu sinni svo að þegar ótti er orðinn stjórnlaus þá er einfaldlega engin leið að sefa hann. Þeir óttafullu eru því dæmdir til að vera áfram skelfingu lostnir.

Stuttu eftir að Sky hafði sýnt frá samkomunni þar sem Donald Trump þreytti blaðamenn með klukkustundar fjasi sínu sagði þingmaður Miðflokksins, Ingibjörg Davíðsdóttir, að það væri mjög miður að íslensk stjórnvöld hefðu ekki sest niður með Bandaríkjunum til að ræða hvað yrði um varnarsamning Íslands ef Ísland myndi ákveða að ganga í Evrópusambandið. 

Þessi orð var ómögulegt að túlka öðruvísi en að Ingibjörg vilji bera aðild Íslands að Evrópusambandinu undir Bandaríkin. Það lýsir miklum undirlægjuhætti, óþarfi er að láta eins og Ísland sé hjáleiga Bandaríkjanna. Frétt um að Ingibjörg vildi bera aðildina undir Bandaríkin var birt á Heimildinni og Ingibjörg brást hin versta við og sagði um falsfréttir að ræða. Ekki er það í fyrsta sinn sem þingmaður Miðflokksins segist ekki hafa sagt það sem hann þó sagði. 

Trump á marga dygga stuðningsmenn í Miðflokknum og grunur leikur á að þeir séu ansi skotnir í Maga-hreyfingu forsetans. Ekki er langt síðan formaður Miðflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, lýsti yfir áhuga á að Donald Trump yrði boðið hingað til lands í opinbera heimsókn og honum veitt verðlaun fyrir árangur sinn í því að koma á friði í heiminum. Óneitanlega lýsir þetta einkennilegri heimsýn formannsins.

Jafn ótrúlega og það hljómar þá eru hér á landi stjórnmálamenn sem horfa með virðingu til Trumps og vilja efla samskipti við hann. Þeir eru svo blindaðir í hatri sínu á Evrópusambandinu að þeir mæra forseta sem skapar hættu fyrir heimsbyggðina. Það má vel velta því fyrir sér hversu mikið gagn íslenska þjóðin hefur af slíkum stjórnmálamönnum.