Pressan

Andrew varð fyrir barðinu á hettuklæddum eltihrelli

Mynd

Hluti af vitnisburði Andrew Mountbatten-Windsor, bróður Bretakonungs og fyrrverandi hertoga af York, var lesinn upp fyrir dómi í dag í máli gegn 39 ára manni sem sakaður er um ógnandi hegðun gagnvart honum.

Mirror greinir frá.

Hinn 39 ára gamli Alex Jenkinson hefur verið ákærður fyrir að hafa 6. maí í Wolferton í Norfolk, skammt frá heimili Andrews á Sandringham-setrinu, viðhaft ógnandi og móðgandi hegðun gagnvart honum með þeim afleiðingum að Andrew óttaðist um öryggi sitt. Jenkinson hefur neitað sök. Hann hefur einnig neitað sök í öðru máli þar sem hann er sakaður um svipaða hegðun gagnvart öðrum manni, Stephen Terry, þann 5. maí.

Í vitnisburði sínum lýsti Andrew því hvernig hann var á göngu með hundum sínum á landareigninni þegar hann tók eftir bíl sem hann taldi mögulega tilheyra ljósmyndurum. Hann og öryggisverðir hans óku fram hjá bílnum. Þá sá Andrew mann sem sneri sér að honum. Maðurinn var með andlitið hulið með lambhúshettu. Andrew lýsti honum sem manni sem virtist vera „ekki á sínum stað“ á svæðinu. Hann sá síðan lausan hund hlaupa í átt að manninum og sagði að maðurinn hefði áttað sig á hver hann væri og þá tekið að elta bíl Andrews.

Lögreglan í Suffolk óskar jafnframt eftir sérstöku nálgunarbanni gegn Jenkinson, Stalking Protection Order. Byggir sú beiðni meðal annars á vitnisburði Andrews og gögnum úr síma Jenkinsons. Þar eiga meðal annars að hafa fundist upplýsingar um netleitir að Andrew, Sandringham og „vopnum“.

Mynd

Hundurinn mátti ekki vera í dómsalnum

Jenkinson mætti ekki í dómsal í dag þar sem hann kom þangað með hund sinn, Indie. Lögmaður hans sagði að Jenkinson væri heimilislaus, byggi tímabundið á Travelodge-hóteli og mætti ekki skilja hundinn eftir þar. Hundurinn væri stuðningsdýr vegna ADHD-greiningar Jenkinsons. Dómarinn, Tan Ikram, sagðist þó ekki geta leyft hundinum að vera í dómsalnum án frekari gagna um að slíkt væri nauðsynlegt. Síðar kom fram að fundist hefði annað tímabundið húsnæði þar sem hægt væri að skilja hundinn eftir.

Jenkinson sat mánuð í gæsluvarðhaldi eftir atvikið. Hann hefur játað að hafa neitað að gefa blóðsýni í haldi lögreglu.

Aðalmeðferð í málinu hefur verið ákveðin 21. desember og á Andrew að bera vitni í gegnum fjarfundabúnað. Dómarinn ákvað jafnframt að Andrew, Stephen Terry og sjónarvottur að atvikinu skuli bera vitni aftur við meðferð umsóknar lögreglunnar um nálgunarbann á hendur Jenkinson.

Á meðan málið er til meðferðar má Jenkinson ekki koma nálægt Sandringham, Buckingham-höll, Balmoral, Windsor eða Highgrove. Honum er einnig bannað að hafa samband við Andrew og að koma til Norfolk.