Þekkt fólk og fundir, þar sem allt frá dómsdegi til kynlífs er rætt, er það sem dularfullur milljarðamæringaklúbbur býður upp á. Í honum eru tæplega 200 af áhrifamesta fólki heimsins. Það hefur hist á vegum klúbbsins í 20 ár og allan þennan tíma hefur tekist að halda þessu leyndu.
En nýlegur gagnaleki varpar ljósi á þennan dularfulla klúbb að sögn Wired sem segir að klúbburinn heiti Dialog.
Wired segir að mikill fjöldi skjala, sem hefur verið lekið, sýni hvernig margt af ríkasta og áhrifamesta fólki heimsins hafi fundað án þess að almenningur vissi af því.
Fundirnir eru meðal annars sagðir hafa snúist um gervigreind, deilur á alþjóðavettvangi og hugsanlegar hörmungar í framtíðinni.
Dialog var stofnað 2006 af Auren Hoffman og Peter Thiel, sem var meðal stofnenda PayPal.
Félagatalinu og öðru varðandi klúbbinn hefur verið haldið leyndu fram að þessu. En nú eru málin farin að skýrast fyrir almenning og má nefna að meðal klúbbfélaga eru Elon Musk, bandaríski þingmaðurinn Ted Cruz, Jared Kushner, tengdasonur Donald Trump, og Neal Mohan, forstjóri YouTube.
Úr röðum fræga fólksins í Hollywood má nefna leikarana Josh Brolin og Joseph Gordon-Levitt.
Fundirnir í klúbbnum eru ekki hugsaðir sem almennar ráðstefnur, heldur sem vettvangur þar sem valdamikið fólk getur skipst á hugmyndum án þess að blaðamenn, myndavélar eða almenningur viti af því.
Næsti fundur klúbbsins er fyrirhugaður í Dublin í ágúst og miðað við upplýsingarnar, sem var lekið, þá verða fundarefnin meðal annars: „Hvernig er kynlífið þitt?“, „Stofnaðu sértrúarsöfnuð“ og „Svona hegðar maður sér í þriðju heimsstyrjöldinni“.