Helgi Hrafn Gunnarsson fyrrum alþingismaður fyrir Pírata og núverandi liðsmaður Viðreisnar segir að ævarandi verðbólga á Íslandi hafi gert út um alla tilfinningu hans fyrir upphæðum í íslenskum krónum. Afleiðingarnar séu þær að hann og raunar fleiri Íslendingar eyði of miklu peningum.
Helgi Hrafn skrifar um þetta í Facebook-pistli:
„„Af hverju eru allir að eyða svona miklu?“ Þessi spurning hittir naglann á höfuðið áður en henni er svarað. Íslendingar eyða rosalega miklu. Ég geri það sjálfur og næstum því allir sem ég þekki gera það líka. En hvers vegna? Tjah, ég get bara talað fyrir sjálfan mig, en ég skal líka gera það. Það er vegna þess að ég hef aldrei nokkurn tíma í lífinu öðlast tilfinningu fyrir upphæðum í íslenskri krónu.“
Helgi Hrafn segist hafa sterka tilfinningu fyrir kanadískum dollurum og evru, vegna þess að hann hafi búið í Kanada og í landi sem notar evruna, þó ekki nema í nokkur ár en það hafi dugað til.
Hvað er mikið?
Meirihluta ævinnar hefur Helgi Hrafn hins vegar búið á Íslandi og þess vegna notað íslenskar krónur. Hann segir að samt öðlist hann næstum meira verðskyn með því að kaupa hluti frá útlöndum en með því að borga af íslenska húsnæðisláninu sínu og fyrir mat í íslenskum verslunum með íslenskum krónum:
„Næstum því allt efnahagslegt umhverfi mitt hefur verið í íslenskum krónum, næstum því alla mína ævi, og ég er að verða miðaldra og hef enga tilfinningu fyrir því hvað er dýrt og hvað er ódýrt. Hamborgaratilboð á 3.500 kall? Er það mikið? Ég hef ekki fjandans hugmynd og ekki þú heldur. Þú veist ekkert um það, og þú veist að þú veist ekkert um það. Ótrúlegt en satt, þá er venjan að vita eitthvað slíkt, og geta valið á milli viðskipta út frá þessari spurningu. Hugsið ykkur.“
Ástæðan sé einföld, ævilöng verðbólga. Það sé heldur engin leið að skipuleggja fjármál sín til framtíðar nema með verðtryggingu sem passi ekki inn í nein fræði sem varði fjármál:
„Gerðu þér ógreiða, og farðu inn á vefsíðu lífeyrissjóðsins þíns og flettu því upp hversu mikinn lífeyri þú kemur til með að fá. Hefurðu minnstu hugmynd um hvort þetta dugi eða fyrir hverju, eftir áratug eða tvo? Nei, auðvitað ekki. Hugmyndin um að hafa minnstu hugmynd um það, er fáránleg. Manni dettur ekki einu sinni til hugar að reyna að meta það. Það skásta sem maður getur gert er að stóla á að verðtryggingin galdri þetta bull í lag.“
Vill Helgi meina að með upptöku evru muni Íslendingar öðlast meiri innsýn í hvað hlutirnir kosti raunverulega.