Fréttir

Sér mikil líkindi með Nei-hreyfingunni á Íslandi og MAGA í Bandaríkjunum - „Ræðst á stofnanir, sakar menn um að ganga erinda erlends valds“

Mynd
Myndin er samsett.

Össur Skarphéðinsson fyrrum þingmaður og ráðherra Samfylkingarinnar segist sjá margt sameiginlegt með hreyfingunni sem berst fyrir að nei verði ofan á í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst og heitustu stuðningsmönnum Donald Trump Bandaríkjaforseta, en síðarnefndi hópurinn er iðulega kenndur við þekktasta slagorð forsetans með skammstöfuninni MAGA (e. Make America Great Again).

Össur fjallar um þetta í Facebook-pistli og segir báðum hreyfingum stýrt af auðmönnum:

„Í Bandaríkjunum er MAGA-hreyfingunni stýrt af milljóna- og billjónamæringum. Hún ræðst á stofnanir, sakar menn um að ganga erinda erlends valds. Engin málamiðlun er möguleg. Staðreyndir eru affluttar. Afgreiddar sem “fake news”. Andstæðingurinn er ekki bara með aðra skoðun. Hann er svikari og landssölumaður. Með öllum ráðum er þaggað niður í stofnunum, einstaklingum og fjölmiðlum.“

„Á Íslandi er NEI-hreyfingunni stýrt af auðmönnum einsog Halldóri Benjamín, hálaunaðri verkalýðsforystu sem vill ekki einu sinni leyfa eigin félagsmönnum að skoða möguleika á lækkun matvælaverðs eða verulega lægri vöxtum húsnæðislána - og fulltrúum sem áður sátu efst á tróni stjórnkerfisins.“

Össur segir að eins og MAGA-hreyfingin hafi NEI-hreyfingin aðgang að ótæmandi sjóðum. Í síðara tilvikinu fé útgerðarmanna sem haldi úti áróðri fyrir því að þjóðin segi nei í Morgunblaðinu.

Fé útgerðarinnar sé notað í opnuauglýsingar, heilsíðuauglýsingar og endalaus flettiskilti sem gersamlega yfirgnæfi JÁ-skilti:

„Fólk er á launum við að skrifa greinar, og ríflega styrkt forlög gefa út bækur hugmyndafræðinga NEI-aranna. Hvergi er gerð grein fyrir hvaðan fjármunirnir komi.“

Kúgun og ótti

Össur vill meina að forystumenn NEI-hreyfingarinnar beiti kúgun og skapi ótta meðal embættismanna til að þagga niður eðlilegt upplýsingastreymi. Hreyfingin mæti lögfræðilegum eða efnahagslegum staðreyndum með því að segja að sérfræðingar, háskólasamfélagið eða ráðuneytin séu „gengin í björg“ hjá erlendum öflum eða spillt af Evrópustyrkjum:

„Eitt dæmi um þöggun er samspil Moggans og fyrrverandi forseta í árásum á utanríkisráðuneytið. Annað dæmi er hrein fölsun Mogga í forsíðufrétt af álitsgerð þriggja lagaprófessora sem snéri niðurstöðunni á haus.“

Össur segir þversögnina síðan vera þá að þeir sem tali mikið um að verja Ísland gegn erlendu valdi séu áhyggjufullir yfir því hvað Bandaríkjunum finnist um framhald aðildarviðræðna við ESB og minnist þar orða Ingibjargar Davíðsdóttur, þingmanns Miðflokksins. Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti Íslands hafi svo bætt um betur:

„Steininn tók þó úr þegar Ólafur Ragnar Grímsson af öllum mönnum varaði “þær stöllur” við því í Spursmálum Moggans að þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna gæti styggt valdaelítuna í Washington. Ég trúði ekki mínum eigin eyrum. Eigum við að hafna samstarfi við vini í Evrópu en bukka okkur fyrir valdinu í Washington? Öðru vísi mér áður brá - og er ekki einu sinni að hugsa um Fálkaorðuna sem rifin var af sendiherra USA á afleggjaranum að Bessastöðum fyrir níðangurslega framkomu Bandaríkjanna við Ísland í Icesave. Það var einhver allt annar Ólafur.“