Donald Trump Bandaríkjaforseti telur að Bandaríkin verði búin að taka yfir Grænland áður en kjörtímabil hans rennur út í janúar 2029.
Varðberg fjallar um viðtal Trump við bandarísku útvarpsstöðina „Real America’s Voice“ þar sem Trump hvatti þáttastjórnandann Steve Gruber til að veðja á yfirtöku Grænlands í hans forsetatíð og sagði Bandaríkin betur búin til varna Grænlandi en Danmörk. Þáttastjórnandinn sagðist hafa áður veðjað á yfirtöku á Grænlandi á meðan Trump væri forseti. „Þú vinnur ef þú veðjar á það,“ svaraði Trump í þættinum. Trump útskýrði það ekkert frekar en ljóst er að hann er hvergi nærri hættur að vilja fá Grænland.
Þá birti Trump mynd á samfélagsmiðlinum sem líkist grænlenskum bæ með eigið andlit á bak við fjall með feitletruðum texta: „Halló, Grænland!“
Kringvarp Færeyja segir að Trump hafi vakið hörð viðbrögð bæði þar og á Grænlandi. Á vef Varðbergs er fjallað um samband Danmerkur og Bandaríkjanna um varnarmál en það byggir á samningi frá 1951 sem hefur veitt Bandaríkjunum rétt til hernaðarstarfsemi á eyjunni, einkum nærri Pituffik-herstöðinni. KVF bendir á að umræðan hafi á undanförnum árum færst frá hreinu varnarsamstarfi yfir í víðtæka umræðu um milliríkjapólitík, auðlindir og áhrif stórveldanna á Norður-Atlantshafssvæðinu. Slíkar yfirlýsingar forseta Bandaríkjanna varða því ekki aðeins samskipti við Danmörku heldur einnig sjálfstæði Grænlendinga og alþjóðlegan rétt.
Davíð Þór Björgvinsson, fyrrum dómari við Mannréttindadómstól Evrópu, segir á Facebook um áform Trump:
„Grænlendingar vilja ekki Bandarísk yfirráð og vilja áfram (í bili amk.) vera hluti af danska konungdæminu. Þeir hafa þegar heimastjórn og ráða sínum innanríkismálum sjálfir. Í mörg ár hafa þeir undirbúið fullt sjálfstæði og fullveldi og stíga það skref þegar þeir telja sig tilbúna til. Þeir eiga að ráða sinni framtíð sjálfir og Íslendingar eiga að standa með þeim í því.“