Fréttir

Íslenskur karlmaður hótaði 4 lögreglumönnum lífláti

Mynd
Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki með beinum hætti.

26 ára karlmaður hlaut 30 daga skilorðsbundið fangelsi með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í vikunni fyrir að hafa hótað fjórum lögreglumönnum lífláti í Reykjanesbæ mánudaginn 23. desember 2024.

Maðurinn var ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa „ mánudaginn 23. desember 2024, í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í Reykjanesbæ hótað lögreglumönnum nr. A og B lífláti og lögreglumanni nr. C líkamsmeiðingum, í bifreið á leið frá flugstöðinni á lögreglustöðina við Hringbraut í Reykjanesbæ [og] jafnframt hótað lögreglumanni nr. C lífláti og í fangaklefa á lögreglustöðinni hótað lögreglumanni nr. D lífláti, í öllum tilvikum þar sem lögreglumennirnir voru við skyldustörf.“

Maðurinn játaði skýlaust brot sín og lýsti yfir iðrun. Horfði dómari á það manninum til málsbóta og að nokkuð var um liðið frá því brotin voru framin. Maðurinn á nokkurn sakaferil að baki og var meðal annars sakfelldur fyrir sams konar brot í júlí árið 2021 en ákvörðun þeirra refsingar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. 

Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, 353.400 kr.