Þótt stríð Rússlands og Úkraínu hafi að undanförnu snúist síðarnefnda ríkinu nokkuð í vil sér ekki fyrir endann á átökunum. Ljóst er að mikil stríðsþreyta er komin í báðar þjóðir og þegar kemur að Úkraínu þá hefur fjöldi karlmanna með markvissum hætti komið sér undan herskyldu. Úkraínska herinn skortir þar af leiðandi mannskap og töluvert hefur borið á því að karlmenn séu einfaldlega teknir með valdi á götum úti og skikkaðir í herinn.
SVT, sænska ríkissjónvarpið, fjallaði um helgina töluvert um stöðu úkraínskra karlmanna sem vilja ekki gegna herskyldu og eru margir þeirra beinlínis í felum.
Talið er að fjöldi þessara manna nemi um tveimur milljónum. Að undanförnu hafa reglulega birst á samfélagsmiðlum myndskeið af karlmönnum sem eru sóttir með valdi á almannafæri í bæjum og borgum Úkraínu og neyddir í herinn. Allir karlmenn á aldrinum 25-65 ára mega ekki yfirgefa landið og eru skyldugir til að gegna herþjónustu.
SVT ræðir við úkraínskan mann sem gengur undir dulnefninu Dmytro. Hann er harðákveðinn í því að fara ekki í herinn og er að bíða eftir rétta tækifærinu til að flýja land. Hann segist vera búinn að pakka í tösku. Dmytro segir ljóst að nú sé runnið upp fimmta ár stríðsins og hann hafi þar af leiðandi ekki hugmynd um hversu lengi hann myndi vera á vígstöðvunum. Nefnir hann einnig að sumir vina hans hafi komið til baka frá vígstöðvunum örkumlaðir.
Viljinn
Úkraínsk stjórnvöld eru sögð hafa í hyggju að koma meira til móts við þá sem eru tregir til að berjast í stríðinu með til að mynda takmörkunum á hversu lengi menn þurfi að gegna herþjónustu og hækkun á launum þeirra sem berjast þar sem átökin eru hörðust.
Á móti kemur að gera á þeim sem forðast herskylduna enn erfiðara fyrir með til dæmis því að loka greiðslukortum þeirra.
Síðan stríðið byrjaði árið 2022 hafa 30.000 úkraínskir karlmenn flúið yfir til Rúmeníu sem á landamæri að sunnanverðri Úkraínu. Hafa margir þeirra kosið að fara þessa leið með því að ganga yfir Karpatafjallgarðinn sem nær yfir samtals sjö lönd í Austur-Evrópu. Þessi leið getur verið mjög varasöm og alls hafa 39 Úkraínumenn beðið bana við þessa þolraun. Þetta er einmitt leiðin sem áðurnefndur Dmytro ætlar sér að fara. SVT ræðir við annan Úkraínumann sem fór yfir Karpatafjöll til að komast yfir til Rúmeníu en hann komst naumlega lífs af eftir að hafa orðið fyrir ofkælingu.
Ljóst virðist því að örvænting þeirra Úkraínumenn sem vilja koma sér undan því að vera sendir á vígvöllinn sé mikil