Erlent par var handtekið á Seyðisfirði á fimmtudag eftir að ríflega hundrað egg villtra íslenskra fuglategunda og fimm lifandi hrossagauksungar fundust í bifreið þeirra. Parið var á leið úr landi með Norrænu.
Parið var yfirheyrt samdægurs og búnaður þeirra haldlagður. Í gær var þeim birt sektargerð sem þau samþykktu og greiddu.
Lögreglan á Austurlandi greinir frá atvikinu í færslu sinni á Facebook.
Par var handtekið eftir leit tollgæslu og lögreglu í bifreið þeirra á Seyðisfirði þar sem þau voru á leið úr landi með Norrænu síðastliðinn fimmtudag, grunað um tilraun til smygls á ríflega hundrað eggjum villtra íslenskra fuglategunda er geymd voru í sérútbúnum hita töskum. Þá voru fimm lifandi hrossagauksungar í fórum þeirra. Eggin sem fundust voru lunda meðal annars, rjúpnaegg, heiðlóu- og spóaegg, æðar- og lómsegg, hrossagauks-, ritu- og andaregg.
Við greiningu naut lögregla aðstoðar Náttúrufræðistofnunar Íslands og Náttúrustofu Austurlands sem í beinu framhaldi af haldlagningu tóku bæði egg og unga undir sinn verndarvæng. Þá var MAST upplýst um málið.
Þau handteknu, sem bæði eru borgarar Evrópuríkis, voru yfirheyrð samdægurs, og búnaður þeirra haldlagður, hitatöskur meðal annars. Þeim var í gær birt sektargerð sem þau hafa samþykkt og greitt.