Fréttir

Inga farin í veikindaleyfi

Mynd
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. DV/KSJ

Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra og formaður Flokks fólksins er farin í tímabundið veikindaleyfi.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins og þar segir enn fremur að Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, muni gegna starfi mennta- og barnamálaráðherra í fjarveru Ingu.

Þess er ekki getið hvaða veikindi eru að hrjá Ingu.