Klukkan er orðin 15.30 og styttist í lok vinnudags hjá mörgum, og viðkomu í matvöruverslun á heimleiðinni. Við höfum öll heyrt þá gullnu reglu að versla ekki í matinn þegar við erum svöng, því þannig eiga ótal margar girnilegar vörur og jafnvel dýrar, og dýrari en við ætluðum að kaupa, eftir að lenda í innkaupakerrunni.
Prófessor í neytendasálfræði, Cathrine Jansson-Boyd, við Anglia Ruskin háskólann í Bretlandi, segir marga neytendur mjög venjubundna þegar kemur að matvöruinnkaupum, við förum alltaf í sömu verslunina og kaupum sömu vörur í hverri viku, sem geti leitt til hækkunar á innkaupunum.
Með því að vera meðvitaður um eigin innkaupavenjur og gera nokkrar breytingar á þeim getum við dregið úr kostnaðinum að hennar mati. Hér eru nokkur góð ráð sem allir ættu að geta tamið sér:
Farðu yfir ísskápinn, frystinn og matarskápa
Jansson-Boyd bendir á að margir hafi ekki hugmynd um hvað leynist mikið af matvöru í skápunum, ísskápnum og frystinum þeirra.
„Þetta er sérstaklega algeng leið til að sóa peningum, þar sem margar vörur eru ónotaðar, renna út og enda að lokum í ruslinu,“ segir hún.
Verslaðu aldrei án þess að setja þér fjárhagsáætlun og farðu ekki yfir þá upphæð
Að hafa ákveðna upphæð í huga sem þú ætlar að eyða í matvöruversluninni mun hjálpa þér að halda þér á tánum og fylgjast með tilboðum, þannig að þú getur forðast að eyða of miklu í hvert og eitt skipti.
Ef þetta er eitthvað sem þú hefur átt í erfiðleikum með, mælir Jansson-Boyd með að þú skráir þig í hollustuforrit matvöruverslana og notir einnig „skannaðu og verslaðu“ sem boðið er upp á í nokkrum verslunum, þar sem þú getur í rauntíma fylgst með hvað það sem komið er í körfuna kostar.
Hérlendis bjóða Bónus (Gripið og greitt) og Krónan (Skannað og skundað) upp á þennan verslunarmöguleika í mörgum verslanna sinna.
Víkið frá uppskriftinni
Ef þið farið með ákveðna uppskrift í matvöruverslunina til að versla eftir þá eruð þið líklega að skipuleggja að kaupa öll hráefnin sem uppskriftin telur upp. Jansson-Boyd segir það vera mistök og mælir frekar með að vera skapandi við matreiðsluna til að spara peninga.
„Þið þurfið ekki að kaupa allt sem talið er upp í uppskriftinni. Athugið fyrst hvað er til heima til að sjá hvort það er eitthvað sem má nota í staðinn.“
Til dæmis gætirðu átt mikið af (ónotuðum) kryddum heima fyrir sem nota má í staðinn fyrir að kaupa enn eitt kryddið, sem dagar svo uppi í kryddskúfunni.
Ekki fara alltaf í sömu matvöruverslunina
Matvöruverð er mismunandi eftir verslunum, svo það getur verið ódýrara að versla annars staðar. Það sama á við um þá sem versla á netinu, því þú ert líklega með innkaupalistann þinn skráðan á vefsíðuna og heldur bara áfram að panta sömu vörurnar aftur og aftur.
„Það getur verið kostnaðarsamt ef þú fylgist ekkert með verðbreytingum og berð ekki verslanir saman,“ varar Jansson-Boyd við.
Notaðu körfu, ekki innkaupakerru
Þegar karfan fyllist og verður þung, hættir þú að versla miklu fyrr en þú myndir gera með stóra innkaupakerru.
Ekki horfa bara á verð hlutar
Vertu viss um að skoða líka kílóverðið og ekki kaupa vörur á afslætti bara af því þær eru merktar á afslætti.
„Skilti sem tengjast útsölum og almennir afslættir vekja athygli fólks (oft ósjálfrátt) og þótt við einblínum á lága verðið berum við ekki saman hvort það sé í raun gott verð,“ segir Jansson-Boyd. Vara sem er merkt með afslætti er ekki endilega ódýrari en vara sem er ekki með afslætti.
Forðist að kaupa vörur í magnpakkningum
Jansson-Boyd mælir ekki með að kaupa vörur í magnpakkningum, nema þú munir virkilega nota alla vöruna/pakkninguna áður en hún rennur út. Það sparar engan veginn í heimilisbókhaldinu að kaupa vörur ódýrari í magnpakkningum ef hluti þeirra endar svo í ruslinu.