Það er ljóst hvaða verkefni bíða íslensku liðanna í fyrstu umferð forkeppninnar í Evrópukeppni í næsta mánuði.
Víkingur fékk erfiðan drátt í Meistaradeildinni, en liðið mætir ungversku meisturunum í Györ og fer fyrri leikurinn fram hér heima.
Það var ljóst að bikarmeistarar Vestra fengju erfiðan drátt í Evrópudeildinni og varð niðurstaðan ógnarsterkt lið Qarabag frá Aserbaídsjan, sem fór alla leið í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar á síðustu leiktíð. Fyrri leikurinn fer fram ytra.
Loks mætir Stjarnan Víkingi Götu frá Færeyjum í Sambandsdeildinni og spilar fyrri leikinn ytra.
Valur er einnig með í Evrópukeppni í ár en sleppur við fyrstu umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar. Liðið kemur inn í aðra umferð og verður dregið í hana á morgun.
Hin íslensku liðin fá því einnig að vita um mögulega andstæðinga sína í annarri umferð á morgun.