433

Carrick tjáir sig um stöðuna - Segir fólki að fara varlega

Mynd
Getty Images

Michael Carrick tjáði sig um stöðu JJ Gabriel hjá Manchester United eftir 3-2 tapið gegn Brighton í deildabikarnum.

Hinn 15 ára gamli Gabriel er sagður vilja yfirgefa United þrátt fyrir að vera talinn eitt mesta efnið í akademíu félagsins. Búist hafði verið við því að hann gæti fengið tækifæri með aðalliðinu gegn Brighton en hann var ekki í hópnum vegna stöðunnar.

„Við þurfum að fara varlega í þetta. Hann er 15 ára strákur. Þetta snýst fyrst og fremst um velferð JJ og að hugsa vel um hann því hann er barn,“ sagði Carrick.

„Staðan er eins og hún er en við þurfum að passa okkur á því hversu mikla athygli við setjum á þetta.“

Carrick vildi ekki tjá sig um hvort Gabriel væri á förum. Real Madrid, Barcelona, PSG og Bayern Munchen eru sögð meðal þeirra félaga sem hafa áhuga á honum.

Gabriel skoraði þrennu gegn Sabah í Evrópukeppni unglinga í síðustu viku en hefur nú fjarlægt allt tengt Manchester United af Instagram-síðu sinni.