433

Selur fyrirtækið sitt á um 50 milljarða - Þekktur um heim allan fyrir afar umdeilt athæfi árið 2013

Mynd

Charlie Morgan, boltastrákurinn sem Eden Hazard sparkaði í árið 2013, hefur selt vodkafyrirtæki sitt fyrir 300 milljónir punda (um 49 milljarðar íslenskra króna).

Morgan vakti heimsathygli aðeins 17 ára gamall þegar Swansea mætti Chelsea í deildabikarnum fyrir um þrettán árum. Hann reyndi að tefja þegar Hazard ætlaði að ná í boltann en Belginn sparkaði í Morgan þegar hann reyndi að losa boltann undan honum og fékk rautt spjald.

Mynd

Aðeins tveimur árum síðar stofnaði Morgan Au Vodka ásamt æskuvini sínum Jackson Quinn. Fyrirtækið óx hratt og var meðal annars auglýst af þekktum nöfnum á borð við Floyd Mayweather og Ronaldinho.

Nú hefur bandaríski áfengisrisinn Sazerac keypt Au Vodka fyrir 300 milljónir punda.

„Það sem Charlie, Jackson og teymi þeirra hafa afrekað á rúmum áratug er stórkostlegt og afar sjaldgæft,“ sagði Jake Wenz, forstjóri Sazerac.

Mynd

Þess má geta að allt er í góðu milli Morgan og Hazard í dag, en sá fyrrnefndi bauð knattspyrnumanninum fyrrverandi í heimsókn í fyrirtæki sitt árið 2024 og fór vel á með þeim, eins og má sjá hér ofar.

Hazard lagði skóna á hilluna árið 2023, aðeins 32 ára gamall, eftir dvöl hjá Real Madrid.