433

Frá London til Amsterdam

Mynd
Getty Images

Yves Bissouma er að ganga til liðs við Ajax á frjálsri sölu. 

Þessi þrítugi miðjumaður hefur verið án félags frá því samningur hans við Tottenham rann út í sumar en nú er ljóst að næsta skref á ferlinum verður í Amsterdam.

Bissouma hefur náð samkomulagi við Ajax um það að leika með liðinu út tímabilið með möguleika á eins árs framlengingu.

Malímaðurinn gekk til liðs við Tottenham frá Brighton árið 2022 og lék 111 leiki fyrir Lundúnaliðið. Hann spilaði þó aðeins ellefu leiki á síðasta tímabili.