433

Gylfi Þór framlengir samning sinn við Víking

Mynd
Gylfi Þór
Gylfi Þór Sigurðsson

Gylfi Þór Sigurðsson hefur skrifað undir nýjan samning við Víking út árið 2027.

Gylfi gekk til liðs við Víkinga í febrúar 2025 og var lykilmaður í liði Víkings sem sótti Bestu deildar skjöldinn á ný í Hamingjuna.

Gylfi hefur leikið 46 leiki fyrir félagið og í þeim hefur hann skorað 13 mörk.

„Gylfa Þór þarf ekki að kynna fyrir neinum, hann er besti landsliðsmaður Íslands frá upphafi og jafnframt sá markahæsti. Leiðtogi á vellinum og hefur verið partur af gríðarlega sterkri miðju Víkings síðastliðið ár. Það er gríðarlega ánægjulegt að hann verði með okkur a.m.k. eitt ár í viðbót því hann setur mikla pressu á sjálfan sig, liðsfélaga og starfslið sem er akkúrat það sem við viljum frá honum,“ segir Kári Árnason yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingi.