433

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls

Mynd
Knattspyrnudeild Stjörnunnar og Jökull I. Elísabetarson hafa komist að samkomulagi um starfslok Jökuls sem þjálfari meistaraflokks karla Þetta staðfestir félagið í tilkynningu.

Stjarnan hefur farið illa af stað í Bestu deild karla og þá féll liðið úr leik í bikarnum í vikunni gegn Lengjudeildarliði Aftureldingar.

Jökull höf störf hjá Stjörnunni í nóvember 2021 sem aðstoðarþjálfari og tók síðan við sem aðalþjálfari af Ágústi Gylfasyni í maí 2023. Undir stjórn Jökuls hefur liðið tryggt sér tvívegis þátttökurétt í Sambandsdeild Evrópu.

„Jökull hefur tekið mikinn þátt í velgengni knattspyrnudeildar síðastliðin ár og hjálpað mörgum ungum leikmönnum að bæta sinn leik og komast erlendis í atvinnumennsku.Jökull hefur ávallt sinnt sínum störfum fyrir félagið af miklum metnaði og dugnaði og unnið ómetanlegt starf fyrir Stjörnuna," segir á vef Stjörnunnar.

Jón Þór Hauksson fyrrum þjálfari ÍA og fyrrum aðstoðarþjálfari Stjörnunnar er mest orðaður við starfið.