433

Ein stór breyting á úrslitaleik Meistaradeildarinnar í ár

Mynd
Mynd/Getty

Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar fer fram töluvert fyrr en fólk á að venjast þetta árið.

Arsenal og Paris Saint-Germain munu leika til úrslita, en þetta varð ljóst eftir að undanúrslitaeinvígin kláruðust í vikunni.

Leikurinn fer fram klukkan 16 að íslenskum tíma á Puskas-leikvanginum í Búdapest þann 30. maí.

Þetta er breyting frá síðustu árum, en þá hefur leikurinn hafist klukkan 19 að íslenskum tíma.

Þetta á að bæta upplifun stuðningsmanna betri, sem og gera leikinn aðgengilegri fyrir yngri áhorfendur og alþjóðlegan markað.